Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Page 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Page 9
lendu Masinga reglu sé dregið af orðinu. Marxisti. Orðið er tekið úr tungumáli eyjarskeggja og þýðir bræðralag . Norðurálfumenn, sem verið hafa viðstaddir, þegar órói af völdum varnings-trúarmanna hefur brotist út, skilja venjulega ekki, hvernig á þessu getur stað- ið. Eyjarskeggjar fleygja frá sér öllum peningum, brjóta helga hluti, yfirgefa garðlönd sín og drepa hinn dýrmæta búpening, þeir sökkva sér niður í lausbeizl- að kynlíf, eða þá þeir aðskilja stranglega menn og konur. Stundum sitja þeir og stara dög- um saman út í sjóndeildarhring- inn til þess að reyna að koma auga á langþráð skip eða flugvél. Stundum dansa þeir, syngja og biðjast fyrir í stórhópum, gagn- teknir og talandi tungum. Menn, sem séð hafa þetta háttalag varnings-trúarflokk- anna, hafa ekki hikað við að lýsa þeim sem brjálæðingum. En þetta eru alveg rökrétt viðbrögð mann- anna við þjóðfélagsskipun, sem þeim virðist vera tilgangslaus og ruglingsleg. Þegar litið er á vanþekkingu Melanesa á þjóðum Evhópu, efnahagsskipulagi þeirra, hárri þróun í iðnaði og tækni, þá verða viðbrögð þeirra skiljanleg. 1 þeim felast allar þeirra vonir og óskir eftir því bezta sem þeir finna í kristinni trú og sinni eig- in. Ef heimsendir er yfirvofandi, þá er óþarfi að hugsa um garð- rækt og fiskveiðar, allar þarfir manna verða þá uppfylltar. Ef Melanesar eru hluti af miklu stærri heild, þá má afnema regl- ur þeirra um félagslega hegðun, þær hafa misst gildi sitt. Vitanlega kemur vamingurinn aldrei til þeirra, en flokkarnir halda samt áfram að vera til. Þar sem þúsundáraríkið kemur ekki á áætlun, þá hafa töfrarnir ef til vill bilað einhvers staðár, eða villa hefur einhvers staðar verið í trúarbrögðunum. Nýir hópar taka sig út úr og mynda nýjan söfnuð á grundvelli hreinni trúar og helgisiða. Flokkurinn hættir ekki að vera til á meðan þjóðfé- VÍKINGUR lagsástandið sem skapaði hann er til. 1 þessu sambandi er rétt að at- huga, að flokkar af svipaðri teg- und eru ekkert sérstakt fyrir- brigði í Melanesíu; menn, sem telja sig vera kúgaða og blekkta hafa alltaf verið tilbúnir til að blanda vonum sínum, ótta, eftir- löngunum og fyrirætlunum, sem ekki hafa gengið að óskum, sam- an við drauma um komu þúsund- áraríkis eða nýja gullöld. Allir hlutar heims hafa fengið reynslu af hliðstæðum vamings-trúar- flokkanna. Allt frá draugadöns- unum Indíána í Ameríku til dýr- lingastjórnar sæluríkis sameign- armanna í Miinster á Siðaskipta- tímanum, frá flokkum í Evrópu, sem túlkuðu Opinberunarbókina á miðöldunum til töframanna í Afríku og afbrigðilegra, kín- verskra Búddista. Stundum hafa menn sætt sig við að bíða og biðja, en stundum hafa þeir reynt að nota hendurnar, í þeim til- gangi að létta undir með skapar- anum og flýta verkum hans. Allt- af hafa trúflokkar þessir orðið til þess að sameina sundurleita og dreifða hópa fólks í sveit og bæjum. Þar sem heildarstjórn hefur ekki ríkt, hafa þeir samein- að fólk í fjandsamlegum þorpum og ættflokkum í stærri stjórn- málalegar og trúarlegar heildir. Um leið og áhugi þessara manna vaknar fyrir veraldlegum málefnum minnkar óróinn. Koma Messíasar verður þá ekki eins yf- irvofandi. I Melanesíu eru inn- lendir menn nú farnir að snúa sér til stjórnmálafélaga, verka- lýðsfélaga og annarra inlendra stofnana með áhugamál sín. Á síðari árum hefur stöðug velmeg- un og jafnvægi í stjórnmálum sorfið sárasta broddinn af ör- væntingu manna. Nú er ekki lík- legt að öflugar hreyfingar varn- ingstrúarmanna muni rísa upp á svæðum, þar sem áhugi manna hefur beinzt að veraldlegum mál- um. Ég lít svo á, að sá vísir að þjóðernisstefnu, sem varnings- trúarflokkarnir voru fulltrúar fyrir muni í framtíðinni líkjast því sem kunnugt er í sögu ann- arra þjóða, sem hafa hætt að hafa lífsframfæri sitt af land- búnaði eingöngu og hafa gerzt þátttakendur í viðskiptalífi heimsins. (Höfundur: Peter N. Worsley í Scientific American, Maí 1959). Grímur Þorkelsson. 4*«'' Hvalurinn er stærsta skepna jarðarinnar. Hér er mynd af nokkrum þeim stærstu. Litla krílið út frá mælikvarðanum er maður í eðlilegri hlutfallsstærð. 225

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.