Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Blaðsíða 6
Lögreglan í Tyrklandi hefir
tekið upp nýstárlega aðferð, til
þess að hegna þeim sem keyra
bifrelð undir áhrifum áfengis.
Ef að upp kemst um slíkt, er
viðkomandi neyddur til þess að
yfirgefa bíl sinn, og er settur
upp í jeppabifreið frá lögregl-
unni, sem ekur með sökudólginn
a. m. k. 25 kílómetra út á eyði-
svæði, þar sem hvergi liggur
nærri mannabyggð eða önnur
umferð, og skilur hann þar ein-
an eftir. Tyrkneska lögreglan
heldur því fram, að með þessari
„afvötnunaraðferð" hafi náðst
framúrskarandi árangur.
Öryggisráðstöfun
í fangelsi í San Antonio í
Texas gerðu fangamir einn dag
uppreisn. í rúmna klukkustund
var allt á öðrum endanum, fang-
amir bmtu allar rúður og vatns-
leiðslur og hvað sem hugsanlegt
var að geta eyðilagt. Eftir að
uppreisnin var afstaðin og allt
var að róast aftur, tóku eftir-
litsmennimir eftir, að fangarn-
ir höfðu breitt rækilega yfir alla
sjónvarps skerma teppi, áður en
uppsteiturinn hófst.
Samkvæmt aldagamalli venju
ber karlmanninum að leggjast
á knén, þegar hann biður sér
stúlku. Og ef hún segir já, tek-
ur það hann fjölda mörg ár að
koma fótunum vel fyrir sig á
ný.
Sýndu mér ferðatöiskuna þína
.... Ef hótelmerkið hefir verið
límt á vinstri hlið töskunnar,
þýðir það, að auðvelt sé að um-
gangast yður og að þér gefið
góða þjónustupeninga. Ef merk-
ið er hægra megin: Það er erf-
itt að gera yður til geðs. Ef
merkinu er stillt öfugt í horni
töskunnar: Þér gefið lítilfjörlegt
þjónustufé.
Þetta er — samkvæmt því er
Milano-blað upplýsir — inn-
byrðis dulmál hjá hótelstarfs-
mönmun við Riveria-ströndina
í Ítalíu.
Fjöldi vísindamanna hefir um
langa tíð reynt að kynna sér
lifnaðarhætti nokkurra fiska,
sem eru útbúnir með soglskálum,
sem þeir nota til þess að sjúga
sig fasta á aðra fiska, t. d. hvali,
og komast á þennan hátt víðs-
vegar um hafið. Fiskurinn er
nefndur remorat, og um áratugi
hafa menn undrast hátterni
hans, án þesis að vera nokkru
nær um eðli hans eða hegðun á
annan hátt. Það þykir þó at-
hyglisvert, að það eru aðeins
sérstakar fiskitegundir er hann
notar þannig sem flutningatæki.
Hagnýt vinnuaðferð. Sérhver kona getur náð peningum úr veski
eiginmannsins, ef hún notar rétt vinnubrögð. Og þau er hægt að
læra af meöfylgjandi mynd. Það á ekki (eins og vinstri vinnu-
teikningin sýnir), að ganga beint og kaldranalega til verks, svarið
*við því verður aðeins önuglyndi. Nei, það á (eins og sjá má á
vinnuteikningunni til hægri), að kyssa og umvefja eiginmanninn
blíðlega, svo að hann finni til vellíðunarkenndar, þegar höndin
fer í brjóstvasann, þar sem veskið er geymt.
Sönnun fyrir þvi, að „tengda-
mæður“ eru í rauninni allra
beztu manneskjur, er sú, að þær
skulu ekki hafa komið af stað
ótakmörkuðum fjölda áf grín-
sögum um „tengdasyni".
Snjallt ráð.
Michaei Gorman, einsog fleiri
starfsmenn við aðal póststöðina
í Buffalo í New York voru lengi
búnir að ergja sig yfir benzín-
þefnum sem stóð aftur úr bíl-
unum er stóðu við stöðvarpalla
hjá þeim og komu með eða tóku
póstpoka. Stofnað var til sam-
keppni um hvernig bezt yrði
ráðin bót á þessu. Miehael hlaut
verðlaunin. Ráð hans var „að
stöðva mótorinn, meðan af-
greiðsla fer fram!“
Flest fólk er í andlegum skyld-
leika við hinn gamla guðfræðing
er sagðist ávalt vera tilbúinn að
breyta um skoðun, en hann
hefði gaman af því, að kynnast
þeim er gæti fengið sig til slíks.
Ekki er það af því að við vilj-
um tala illa um dúfuna, eða
vanmeta kvenmanninn, en það
var ómögulegt að standast þá
freistingu, að birta þessar mynd-
ir hvor við hliðina á annarri.
Vonandi móðgast hvorki dúfan
né daman!
Blaðamaður er var að dansa
á næturklúbb í Madrid, varð
mjög hrifinn af einni dansmær-
inni, er hann hitti þar, og þegar
hann bað forstöðumanninn um
frí fyrir dansmærina þetta
kvöld, svaraði forstöðumaðurinn
að það væri allt í lagi, ef hann
vildi greiða kaupið fyrir aðra,
sem fengin væri í hennar stað.
Blaðamaöurinn var ekki með
nægilegt. af lausum peningum
með sér til þess, en þar sem
hann hafði reikning í klúbbnum,
samþykkti forstöðumaðurinn að
færa dansmærina á reikning
hans — sem desert.
Póststjórnin í London hefir
fengið reynzlu fyrir því, að í
almenningssímaklefum, þar sem
komið hefir verið fyrir speglum
á veggnum, sé miklu minna
krassað og krotað á veggina
heldur en í venjulegum klefum. 1
Ástæðan er talin vera sú, að í
stað hinna taugaveikluðu fálms
og krass hreyfingu, skoði fólk
sig stöðugt í speglinum á meðan
það er að tala í símann. «
Föðurleg áminning: „Það kem-
ur þér ekki við, drengur minn,
hvemig ég kynntist henni móð-
ur þinni fyrst. En ég get sagt
þér það I alvöru, að frá þeim
degi vandi ég mig af þvi að
flauta á eftir kvenfólki".
Þaö eru margir ræðumenn, er
ekki vita hvað þeir eiga að gera
við hendurnar á sér. i mörgum
tilfellum væri mikil bót að því,
að þeir héldu þeim fyrir munn
sér.
222
VÍKINGUK