Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Síða 29
y Stefán Dagfinnsson, skipstjóri
Eftir langa og oft mjög harða
útivist á hafinu í áratugi, kom að
því að heilsan leyfði ekki lengra
starf. Þegar Stefán heitinn yfirgaf
stjórnpallinn á hinu glæsilega skini
ms. Dettifoss, sem hann var skin-
stjóri á síðustu árin, var hann hel-
sjúkur maður. Hann stóð á með-
an stætt var eins og góðum sjó-
manni sæmir. Stefán hóf sjó-
mennsku ungur að árum, fyrst á
fiskiskipum og síðan á verzlunar-
skipum. Hjá Eimskipafélagi íslands
byrjaði hann starf sitt 1920 og
starfaði hjá því félagi óslitið, þang-
að til yfir lauk, en hann lézt í
sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn hinn
31. ágúst síðastliðinn.
Stefán var fæddur í Reykjavík
10. júlí 1895. Foreldrar hans voru
hjónin Halldóra Elíasdóttir og Dav-
finnur Jónsson. Árið 1926 giftist
Stefán eftirlifandi konu sinni, Júní-
önu Stefánsdóttur. Þau eignuðust
5 böm. Fyrsta bam sitt, Sigríði
misstu þau kornunga, en hin 4, sem
upp komust, eru þessi: Dagfinnur
flugstjóri hjá Loftleiðum, giftur
Soffíu Haraldsdóttur; Þóra, gift
Haraldi Björnssyni framkvæmdar-
stjóra; Sigrún, gift Hannesi Haf-
stein stýrimanni og Áslaug, gift
Bjarna Júlíussyni vélstjóra.
Stefán lauk farmannaprófi árið
1922 og gekk í Stýrimannafélag ís-
lands að loknu prófi og var með-
limur þess félags æ síðan.
Er við lítum til baka er margs
að minnast í samstarfi við Stefán
i baráttumálum stýrimanna. Það
má segja að Stefán heitinn hafi frá
upphafi staðið í fylkingarbrjósti
stýrimanna fyrir bættum kjörum
þeirra, auknu öryggi og menntun.
Hann var í stjóm Stýrimanna-
félags íslands árum saman og í hans
stjórnartíð má segja að grundvöll-
ur hafi verið lagður að þeim kjara-
samningum, sem nú gilda.
Með Stefáni var gott að starfa
að félagsmálum. Hann var óvenju
traustur maður, ráðhollur og til-
lögugóður. Gætinn, en þó fylginn
sér í þeim málum er hann áleit að
þyrftu að komast í framkvæmd.
Jafnvel eftir að Stefán var orðinn
fastur skipstjóri hjá Eimskipafé-
lagi íslands, og því hættur að taka
virkan þátt í félagsskap stýri-
manna, var ekki ósjaldan rætt við
hann, um þau mál, sem helzt vom
á dagskrá hverju sinni og var hann
alltaf tilbúinn að ræða málin af
skilningi og festu. Fyrir allt þetta
sem lítillega hefur verið drepið á
og svo margt annað, sem ekki verð-
Stefán Dagfinnsson, skipstjóri.
ur hér upptalið í þessum fáu lín-
um, viljum við meðlimir Stýri-
mannafélagsins, þakka Stefáni af
heilum hug.
Þegar saga Stýrimannafélags ís-
lands verður skráð, er óhætt að
fullyrða að nafn hans verður þar í
hópi þeirra manna, sem mest og bezt
hafa starfað fyrir félagið.
Stefán. Við stýrimenn þökkum
þér samstarf og samflot og árnum
þér fararheilla til ókunnra stranda.
Konu þinni og börnum og öðr-
um ástvinum sendum við okkar
innilegustu samúð.
Theódór Gíslason.
UTGERÐARMENN — VELSTJORAR
VANDIÐ VAL A SMURNINGSOLlUM
SOCONY MOBIL OIL COMPANY INC.,
BÝÐUR ÁVALLT ÞAÐ BEZTA
Þetta merki tryggir gæðin
FYRIR DIESELVÉLAR: D. T. E. Marine Oil, nr. 3—4 og 5
FYRIR HRAÐGENGAR VÉLAR: Delvac Marine Oil 920—930 og 940
FYRIR ALLAR BÍLA- OG BENZlNVÉLAR: Mobilolíur SAE 20—30—40 og 50
H. BENEDIKTSSON H. F. HAFNARHVOLI — REYKJAVÍK
VÍKINGUR
245