Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1960, Qupperneq 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1960, Qupperneq 8
ferð eskimóa, að ná vatninu úr fötunum áður en það frysi í stokk. Hann dreif sig úr öllum fötunum, og tróð á þeim góða stund í lausasnjónum. Snjórinn var svo þurr, að hann saug í sig það mesta af bleytunni eins og þerripappír, og varnaði þannig að fötin frysu í ströngul. Það var þó tvennt, sem Wilkins fyrirleit af heilum huga: Hræsni og almennings umtal. Það sann- aðist líka rækilega með því af- reki, er Byrd hershöfðingi hefur nefnt „frækilegasta flugafrek, sem unnið hefur verið á norður- pólsleiðum. „Wilkins hafði lengi barist fyrir því að koma á flug- ferðum frá Alaska til Spits- bergen. Ég var honum sammála, en flestir voru svartsýnir á þess- ar bollaleggingar hans. Þeir ■bentu á. að hann myndi eins og Lindbergh árið áður, lenda í langflugi yfir opið haf, og einn- ig að íshafskuldinn myndi kæla olíuna svo hún yrði eins og grautur. En Wilkins lét ekkert aftra sér. Eftir nokkurra mánaða und- irbúningsvinnu í Alaska, stakk hann ásamt Ben Eielson hrein- lega af einn góðan veðurdag í eins hreyfils Lockheed Vega flugvél, og setti stefnuna til Spitsbergen í 3600 km. fjarlægð. Fyrsta áfanga ferðarinnar fengu þeir bjart og gott veður, en nokkru síðar lentu þeir í hríðarbyl, er neyddi þá til bess að lenda á óbyggðri norskri eyju, og þar urðu þeir að hírast fast í 5 sólarhringa án þess að geta neitt hafst að. Þeir sluppu loks frá eyjunni með ótrúlega dirfskufullri aðferð. Til þess að létta á vélinni og gera framdrátt hennar auðveldari í hinum gljúpa snjó, fór Wilkins úr vél- inni til þess að ýta henni af stað. Þegar vélin gat komist áfram af eigin rammleik, hélt hann áfram að hlaupa með henni, xram á síð- asta augnablik. Þá greip hann í til þess gerðan kaðalspotta og halaði sig inn í vélina. í júnímánuði sama ár (1928) var hann aðlaður af brezka kon- 48 unginum fyrir afrek sín. 0g auk þess hlotnuðust honum heiðurs- merki og viðurkenning frá flest- um landfræðifélögum víðsvegar um heim. Og tvívegis voru hon- um veitt hernaðar heiðursmerki fyrir hetjulega framkomu. En hann talaði aldrei um slíkar við- urkenningar. Hann sagði einu sinni: „Heiðursmerki hafa að- eins gildi, sem vottur um, að ein- hverri manneskju hafi gefist tækifæri til þess að láta eitthvað gott af sér leiða“. Wilkins var ávallt með þá hug- mynd á takteinum, að geta feng- ið umráð yfir nýjum og endur- bættum kafbát til þess að sigla undir ísbreiðunum til norður- pólsins, en síðari heimsstyrjöld- in útilokaði fyrir honum allar framkvæmdir í því efni. Og brátt varð hann svo upptekinn af því að gera tilraunir til um- bóta á íshafsútbúnaði hermanna. Hann margreyndi sjálfur all- ar nýjungar, áður en aðrir voru látnir taka við hugsanlegum á- hættum. Eitt sinn er hann hafði látið útbúa samkvæmt sinni hug- mynd eldtraustan búning, gerði hann sjálfur fyrstu tilraunir með því að ganga í gegnum meterhátt benzínbál. Hann vildi vera alveg öruggur, áður en aðr- ir fengu að reyna útbúnaðinn. Hermennirnir dýrkuðu hann, og allir unglingar dáðust að honum. Þegar ég eftir styrjöldina átti að skipuleggja háskólanámskeið við- víkjandi pólarfræði. fékk ég hann margsinnis til þess að koma og halda fyrirlestra. Hann var svo skemmtilegur í fram- setningu og náði svo sterkum tökum á áheyrendum, að þeir sátu og hlustuðu með áfergju eins og þeir væru bergnumdir í ævintýri, en aldrei varð þess vart, að hann hefði sjálfur nokk- urntíma komið nærri neinu af því, sem frá var skýrt. 1 gegnum allt lífið voru lifn- aðarhættir hans svo fábrotnir, að helzt mátti líkja við klaust- urlifnað. í Framingham í Massa- chusett, þar sem hann lifði síð- ustu ár ævinnar við margskonar vísindastörf, bjó hann í einu hótelherbergi. símalaust og eng- ar gardínur fyrir gluggum. Þæg- indi og hagsæld skiptu hann engu máli. Hann taldi það lífs- starf sitt, að auka þekkingu og bæta aðbúnað manna til þess að komast af í íshafslöndunum. Eina hörkukalda vetrarnótt varð lögregluþjónn á verði var við dökka þúst í snjóskafli, er hlað- ist hafði upp að járnbrautartein- um á víðavangi. 1 þeirri trú, að þar væri einhver flækingur að frjósa í hel, ýtti hann við þúst- inni, er reis snarlega upp. Það var Wilkins að reyna nýja teg- und svefnpoka. Hann dó eins og hann hafði lifað — í fullu starfi. Þann 1. desember 1958 fann hann til las- leika þar sem hann var að vinna í rannsóknarstofu sinni, en hann lét sem ekkert væri, og lauk við erfitt dagsverk. Þegar ég nú hugleiði hið liðna, hygg ég. að honum hafi mörgum mánuðum áður verið augljóst, að hverju bar. Hann hafði upp á síðkastið skrifað mér fjölda bréfa um eitt eða annpð, sem hann taldi sig þurfa að hafa í lagi. Það var eins og hann ynni að því, að hafa hreint borð hjá sér eftir að hann væri látinn. Innan klukkustundar um kvöldið eftir að hann var kom- inn heim frá vinnunni, var hann dáinn. Hann fannst látinn innan- um stafla af kössum frá hernum með matvælaskömmtum til neyð- arnotkunar, er hann hafði verið að rannsaka og gera tilraunir með á suðuplötunni, sem hann notaði til eigin matargerðar. Eftir jarðarförina fór ég í heim- sókn í hið þægindasnauða hótel- herbergi, er hafði verið „heim- ili“ hans. Og mér komu í hug hinar mjög sérstæðu setningar eftir Swinburne, er einn aðdá- andi Wilkins hafði eitt sinn skrifað í bók, með dagblaða úr- klippum um hann: Hann gaf sig sjálfwn og seldi sig ekki, hvorki guSi fyrir sáluhjálp sinni eða mönnum fyrir gull. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.