Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1962, Blaðsíða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1962, Blaðsíða 11
hvaða konu sem honum lízt vel á í kvennabúr sitt. Áður fyrr, þegar sheikinn hafði ekki efni á að ferðast eða gat borgað, en arabísku ætt- flokkamir lifðu margir í sár- ustu örbirgð, sendu vinsamlegir nágrannar honum kvenfólk. Nú.á sheikinn kádiljáka, flug- völl, prívat flugvélar og nokkr- ar brynvarðar bifreiðir og er á spani um þvera og endilanga Litlu-Asíu að ná sér í úrvals kvenfólk. Leið hans liggur um Tangier, Beirut, Algiersborg, Rabat, Kairo og Port-Said. — Þrælahald er löglegt í Saudi- Arabíu. Alþjóða samtökin gegn þrælahaldi hafa upplýst, að hér sé um að ræða hvorki meira né minna en hálfa milljón þræla og ambátta. Sheik, sem átti viðtal við am- erískan blaðamann um þræla- verzlunina svaraði: ,,Hver mað- ur, kona eða barna, sem það hendir að komast í ánauð, losn- ar aldrei úr henni aftur. Þetta eru lög vor og túlkun á kenn- ingum Kóransins. — Við viður- kennum ekkert þjóðerni þræls annað en þrælastöðu hans í Saudi-Arabíu". Áður en olían fannst í Arabíu lifðu sheikarnir, sem aðrir úr ættflokkarnir villtu hirðingja- lífi, nærðust á döðlum, rís og mögru sauðakjöti. Eigur þeirra voru geitaskinnstjöld og kamel- hársdýnur morandi í bitvarg. Vopnin voru gamlir forhlaðn- ingar frá því snemma á 18. öld, sem var hætt við að springa ef úr þeim var skotið. — Nú eru þeir orðnir margmilljónerar. — Ég las fyrir nokkru grein í ensku blaði um sheik nokkurn, sem ríkti yfir 60 þúsund aröb- unfi, á nokkurra fermílna svæði í eyðimörknni. Árið 1947 fannst olía í landi hans og hann varð samstundis milljónaeigandi og hefur nú 20 milljón sterl.punda árstekjur. — Hann hefur látið hyggja sér stóra höll með öllum nýtízku þægindum — frysti- geymslum, loftkælingu, raflýs- ingu og á hann nú tugi nýtízku VÍKINGUR bifreiða og eru margar þeirra sjaldan eða aldrei notaðar. I greininni er skýrt svo frá, að sheik þessi hafi myrt mnnst 1000 manns með eigin hendi og voru flest fórnarlömb hans ó- æskilegar eiginkonur, hjákonur, þrælar eða gleðikonur. Þegar amerískur blaðamaður vakti at- hygli hans á þessari óhugnan- legu frásögn blaðsins, yppti hann aðeins öxlum og sagði: „Ég á 200 eiginkonur og fimm sinnum fleiri hjákonur, þræla og skækjur. Ég á minnst 2000 konur og hvað ég geri við þær kemur mér einum við“. Lénsyfirráð sheiksins — og einskis annars — og svo lengi hann stendur skil á sköttum og öðrum gjöldum til Saud, Ara- bíukonungs, heldur hann vöidum og yfirráðum yfir lífi og lim- um þegna sinna. Til verndar sér leigði hann sér tvo þýzka S.S foringja og fengu þeir það hlutverk, gegn ríflegri borgun, að æfa 1500 manna'lífvörð. Auk þess keypti hann vopn og næg skotfæri á svörtum markaði í Evrópu. Þá hefur hann rausnast til að sletta nokkrum fjárupphæðum í ætt- ingja sína, sem ennþá lifa við sult og seyru. Það eru aldrei stórar upphæðir og aðeins endr- um og eins til þess að tryggja sjálfan sig og halda við hylli þeirra. — Fyrrverandi franskur ræðismaður í Saudi-Arabíu að nafni Pierre Bonsard, hefur skrifað bók, sem í enskri þýð- ingu heitir „The mad sex sheik of the Middíe East“. Bók þessi er hreint enginn sunnudaga- skólalestur — en virðist vera sannleikanum samkvæm. Lausl. þýtt úr ,,Sjömannen“. Guöm. Jensson. Forn-Grikkir notuðu peninga úr bronzi og blönduðu það með litlu af nikkel. * Kopar var einn af fyrstu málmum, sem maðurinn lærði að nota. Um 7500 árum fyrir Krist var vinna úr kopar hafin. * Krabbamein í lungum er 20 sinnum tíðara í berklasjúklingum en almenn- ingi. * Á 5. og 6. öldum voru híbýli manna í Mið-Austurlöndum lögð grófum ten- ingum. * Rússar eiga langdrægar eldflaugar. Þeir geta skotið flugskeytum milli heimsálfa, miðað þeim nákvæmlega og liæft hvaða skotmark sem er í Banda- ríkjunum innan 30 mín. # Hvítagull er hreint gull, sem gert er hvítara og harðara með nikkel. * Histamine er náttúrlegt efni í lík- ur framleiðsla þess orðið of mikil og ama mannsins. I ofnæmistilfellum get- áhrif þess á heilann valdið andlegum truflunum. * Innrauðar myndir, teknar úr lofti af skógi, er hægt að nota til þess að greina sundur ýmsar trjátegundir í skógum. * Fornar menningarþjóðir notuðu kop- ar í skiptimynt sína vegna þess að hann entist lengi og auðvelt var að móta hann. * Saturnus-eldflaugin hefur 1.500.000 punda þrýstiafl. 11

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.