Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1962, Blaðsíða 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1962, Blaðsíða 33
sveinsprófi í véívirkjun. Reynslan kennir okkur, að þó að frœSilegt nám sé gott og nauðsynlegt, skiftir oftast mestu þegar til kastanna kemur á sjónum að geta og kunna — og vilja taka til höndunum. Hér hefur bókleg menntun vélstjóra- efna farið fram um langt skeið á tveimur stöðum. Á vélfrætöinámskeið- um Fiskifélags íslands fyrir bátaflot- ann og í Vélskólanum í Reykjavík fyrir hin stærri skip. Það voru á sínum tíma ástæður fyrir því að þessi háttur var tekinn upp, þó kostað væri af sama aðila, þ.e. ríkissjóði. Mun umkomuleysi Vélskólans í húsnæðis- málum þá hafa verið megin ástæ*ðan. Nú er þessi ástæða ekki lengur fyrir hendi, og hlýtur jafnvel að verða að því sparnaður að sameina þessi störf undir einn hatt. í annan stað eru nú að skapast meiri og betri kennsluskil- yi*5i í Vélskólanum en annarsstaðar eru fyrir hendi með tilkomu hins mikla vélahúss og verkstæðis. — Það liggur því beint við að breyta hér til og mun ég koma að því síðar. Ég hreyfði þessu á þingi hér fyrir nokkrum árum og komu þá fram raddir frá unnendum Fiskifélagsins um að þatö hefði vakið þessa starf- semi til lífsins, haft hana undir hönd- um um langt skeið og væri því óvið- eigandi að svifta það umsjá vélanám- skeiðanna nú. Hér er ekki um það að ræða, liva'ð kann að vera hagkvæmn- isatriði fyrir Fiskifélagið, heldur hitt, hvað kann að vera hagkvæmast fyrir liina ungu menn, sem sækja menntun sína í þessar stofnanir, en þar mælir allt eins og nú er komið með því að t.d námskeiðin hér í Reykjavík vedði flutt upp í Vélskóla. Eins og tekið var fram hér að framan, er meginatriðið að reynt verði að auka nemendafjöldann í Vélskólanum og svo það a'ð nýta sem bezt þá starfskrafta, sem þegar eru fyrir hendi. Vélvæðing er nú komin á það stig í nálega öllum atvinnu- greinum hér, að tæknimennta þarf fjölda manns, fé sem til þess fer er fjárfesting, sem svarar góðum vöxt- um. Fyrir því höfum við hreyft þessu máli hér og óskum þess að fundar- menn geti fallizt á tillögur okkar sem eru á þessa leið: I. Að verknám, þ.e. hæfilegur tími VÍKINGUR í verknámsdeild unglingaskóla ver*ði tekið gilt sem nokkur hluti þess náms sem talið er nauðsynlegt til inntöku í Vélskólann. Er liér átt við vélvirkja- nóm. Leitað sé samvinnu við Iðn- fræðsluráð um a*ð þessi skipan verði lögfest í iðnlöggjöfinni sem nú er í endurskoðun. II. Fáist vélaverkstæðin almennt ekki til að taka við nemendum til framhaldsnáms í vélvirkjun á þessum grundvelli, verði tekinn upp sá háttur að löggilda eitt gott verkstætöi hér í Reykjavík, t.d. Landssmiðjuna, til þess að fullkomna verknámsskólanem- endur í vélvirkjafaginu og útskrifa þá sem sveina með iðnréttindum, eftir þann tíma sem nauðsynlegur reynist til þess að ná góðum árangri. III. Úti á landsbyggðinni þar sem verknámsskólar eru ekki fyrir hendi, mundu nemendur vei'ða að sætta sig við 4 árin eins og nú. IV. Að vélfræðikennsla Fiskifélags Islands verði lögð undir Vélskólann í Reykjavík, og upp teldð svipað fyrir- komulag og nú er um kennslu í stýri- mannafræðum. Hi'ð minna námskeið í mótorfræði fyrir fiskiskipin verði framvegis haft undir umsjá Vélskól- ans, bæði í Reykjavík og úti um landsbyggðina í svipuðu formi og það nú er. V. A*ð hið meira mótomámskeið Fiskifélagsins verði lagt niður um sinn, enda hefur það verið mjög lítið sótt að undanförnu. Skiftir það því litlu til lausnar því máli sem hér um ræðir. Tilsvarandi nám er ákveðið í frumvarpi til laga um nýsldpun vél- fræðikennsíunnar við Vélskólann, sem samið er fyrir nokkru. Verður naum- ast langt að bíða að þa'ð verði lagt fram á Alþingi. VI. Til þess að nýta enn betur krafta sem fyrir eru, leggjum við til eftirfarandi — um leið og mótornám- skeið Fiskifélagsins verða lögð ni'ður. Að menn sem hafa minnapróf frá Fiskifélaginu, fái eftir 3 ára vél- stjóm, með góðum árangri, við vél allt að 400 HK, rétt-indi til þess að gæta vélar í fiskiskipi me*ð vél allt að 600 HK. VII. a. Að menn sem hafa meira próf frá Fiskifélaginu fái, eftir 3ja ára yfirvélstjóm, með góðum árangri, við vél allt að 900 HK, rétt sem yfir- vélstjóri til þess að gæta vélar í fiski- skipi með allt að 1200 HK. b. A'ð menn sem hafa meira próf frá Fiskifélaginu fái, eftir 3ja ára yfirvélstjórn, með góðum árangri, við vél með allt að 900 HK, eða stundað vélvirkjanám í minnst 2 ár, að af- loknu prófi, rétt til inngöngu í vél- stjóradeild Vélskólans. — Þessar tillögur okkar um vél- stjóra og vélgæzlvunenn, sem numið hafa hjá Fiskifélagi fslands mi*ðar að því, að þeir geti haldið störfum t.d. á fiskiskipi, þó vél þess sé stækkuð nokkuð, eins og svo algengt er. í annan stað miða þær að því að opna þeim möguleika til framhaldsnáms í Vélskólanum, ef vélgæzlustarfið hefur fari*5 þeim vel úr hendi. Er þetta hliðstætt því sem áður hefur verið farið að, þegar kennslulöggjöf dða siglingalögum hefur verið breytt. Hallgr. Jónsson. SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA B&ugötu 11 • Súni 16593 Péitháli 425 Annast öll venjuleg sparisjóðsviðskipti Opið daglega kl. 4-6 nema laugardaga 33

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.