Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1962, Blaðsíða 24
4% af eldsvoðunum um borð eru „almenns
eðlls", sem orsakast af ýmsum utanaff-
komandi áhrifum, eins og árekstri milll
skipa o. fl.
Við sjáum af þessu, að mikil-
vægustu þættir eldvarna eru:
1) Eftirlit.
2) Þjálfun.
3) Forsjálni.
Það gildir framar öllu öðru,
hvort heldur er um að ræða
brunavarnir eða öryggiseftirlit,
að þekkja skipið eins vel og unnt
er.
Það er erfitt að gefa reglur,
sem í öllum atriðum mætti
fylgja gegn öllum eldsvoðum. —
Svo að eitthvað sé nefnt, gilda
ekki sömu reglur gegn olíuelds-
voða í vélarrúmi og gegn elds-
voða í sængurfötum.
Það er því nauðsyn, að menn
skilji og þekki eðli elds til að
bregða rétt við gegn hinum ó-
lílcu tegundum eldsvoða.
7. Eðli elds.
Hér verður stiklað á stóru um
eðli elds.
Frumskilyrði til þess að eldur
geti tendrast eru eftirtalin efni:
1) Brennsluefnið (Fuel).
2) Súrefni.
3) Hiti.
Efni þessi eru hliðar í hinum
svonefnda eld-þríhymingi.
Fjarlægjum við aðeins eina
hlið þessa eldþríhyrnings getur
eldurinn ekki lifað lengur, hve
stór sem hann er.
Það er því gott að hafa í
huga þennan þríhyrning og
reyna með öllum ráðum að fjar-
lægja einhverja hlið hans.
— Brennsluefnið fjarlægt:
Skrúfað fyrir olíuna o. s. frv.
— Hiti fjarlægður: Vatni
sprautað eða úðað á eldinn. Skil-
rúm kæld. Við verðum þá einn-
ig að hafa í huga hvernig hitinn
getur borizt.
1) Við geislun.
2) — leiðslu.
3) — samgang.
Skrúfað fyrir loftræsisleiðslur
o. s. frv.
Súrefnið fjarlægt: Eldurinn
er kæfður með froðu, kolsýru,
sandi, teppi o. s. frv. Það er
lokað fyrir allan loftaðgang að
eldinum.
8. Flokkar eldsvoða.
Eldsvoðum er skipt í flokka
og fer skipting þessi að miklu
leyti eftir því hvaða hlið þrí-
hyrningsins er bezt og hentug-
ast að fjarlægja. öll nýtízku
slökkvitæki eru merkt eftir því
gegn hvaða flokki eldsvoða þau
eru hentugust og ber þá að stað-
setja þessi slökkvitæki, þar sem
þessara eldsvoða er von.
A-eldsvoði: Bruni í föstum
efnum, tré, pappír, klæðum,
filmum o. s. frv. — Efni þessi
brenna jafnt að utan sem innan,
— þessvegna verður að nota
slökkvi-efni sem kemst vel inn
í efnið, t. d. sjó. Það sem eink-
um ber að varast við A-eldsvoða
er enduríkveikja.
Það verður þessvegna alltaf
að endurslökkva vel, ef notuð
eru önnur slökkviefni en vatn.
Af NU-SWIFT handslökkvi-
tækjum eru rauðu tækin, Model
1301, sérstaklega ætluð gegn
þessum eldsvoða.
B-eldsvoði: Bruni vökva eins
og í benzíni, steinolíu, ljósolíu
o. s. frv. Vökvar brenna aðeins
á yfirborðinu og þessvegna má
alls ekki rjúfa yfirborð vökvans
með því að sprauta á hann vatni.
Yfirborðið eykst stórlega og þar
með eldurinn nema vatnsmagnið
sé því meira og kæli vökvann
niður fyrir íkveikju hans.
B-eldsvoða er bezt að slökkva
með:
1) froðu
2) vatnsúðun
3) kolsýru
4) dufti
Af NU-SWIFT-handslökkvi-
tækjum eru bláu tækin ætluð
gegn B-eldsvoða. — NU-SWIFT
Model 1604 og 1400.
C-eldsvoði: Bruni í rafmagns-
tækjum, bifhjólum o. s. frv.
C-eldsvoða er bezt að slökkva
með:
1) kolsýru
2) dufti
Af NU-SWIFT-handslökkvi-
tækjum eru t. d. bláu tækin
Model 1604 ágæt, en rauðu kol-
sýrutækin sem víða finnast, eru
einnig ágæt. Munið, þegar C-
eldsvoði er annars vegar: Rjúf-
ið fyrst af öllu strauminn.
Ágætt slökkvitæki gegn bæði
A- og B-eldsvoðum er sérstakur
úðarastútur — (e. all-purpose
nozzle, d. universal-strálerör)\
Þessi úðari er þannig útbúinn,
að með því að leggja handfang-
ið fram eða aftur, úðar eða
sprautar stúturinn.
Sem úðari er stúturinn tilval-
inn til þess að kæla dekk og
skilrúm — vernda menn við
slökkvistarf gegn eldtungum og
slökkva B-eldsvoða, ef ekki er
nægileg froða fyrir hendi. Þegar
stúturinn er notaður sem
sprauta, er hann mjög góður
gegn A-eldsvoðum.
Þar eð stúturinn sem úðari
gerir sjó að góðu slökkviefni
gegn olíueldi, ætti hann að vera
um borð í hverju skipi.
9. ÞeJcking — þjálfun.
Áður en ég skil við efnið, vil
ég minna á eftirfarandi:
Um leið og elds verður vart,
hvort heldur er um að ræða
stóran eða lítinn eld, þá látið
boð ganga um voðann, hvernig
VÍKINGUR