Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1962, Síða 21
Mesti eldsvoði á sjó 1960
J>ann 19. desember 1960 varð mesti eldsvoði þess árs, er
kviknaði í ameriska flugrélamóðurskipinu Constellation, meðan
það var í smíðum. 50 manns fórust í eldinum og fjárhagstjónið
var talið vera sem svarar 2.100 mllljónum islenzkra króna.
Þegar eldurinn kom upp, lá skipið í byggingarstöðinni f Brook-
lyn i New York, það var fullbyggt að um 85%. Á svæðinu þar
sem eldsupptökin urðu, var 6.000 lítra tankur fyrir mótorfotogen.
En frá honum Iágu leiðslur til ýmissa hjálparmótora til rafmagns-
framleiðslu. Þennan morgun voru í tanknum um 2.000 ltrar af
brennsluefni. tJndir flugvcladekkinu var ennþá mikill tréumbún-
aður í sambandi við smiðarnar er varð ti,I þess að fæða eldinn
og áttu brunaliðsmenn feiknar erfiðleika með að komast þar að.
Einnig var á ýmsum öðrum stöðum bráðabirgða tréskúrar fyrir
skrifstofur og birgðageymslur í sambandi við bygginguna.
Upprunalega orsökin að eldinum var sú, að lyftikrani átti að
flytja til stálbjálka, sem lá á dekkinu. Bjálkinn sveiflaðist til og
rakst í stálplötu, sem lá á vinnupalll, stálpiatan féil niður hjá
— Constellation brennur
tankinum, sem fyrr var nefndur, og braut af honum ventil I
gólfhæð.
Brennsluefnið rann út á dekk og niður um vinnulúgur niður á
neðri dekkin. Verkamennimir voru mjög viðbragðsfljótir að koma
vatnsslöngum f gang til þess að þvo brennsluefnið burtu, en jafn-
hliða var brunavörðum smíðastöðvarinnar strax gert aðvart. I
gegnum hátalarakerfi var strax fyrirskipað reykingabann og öll
eld- og rafmagnssuða yrði stöðvuð samstundis. En vatn var að-
eins nýbyrjað að renna úr fyrstu tveim slöngunum á efsta dekkl,
þegar eldtungur byrjuðu að teygja sig upp um vinnuiúgur af
neðra dekki. Þar hafði farið fram logskurður á stálplötum, og var
talið fullvist, að strax hefði farið neisti i olíuna, og eldurinn,
sem kviknaði, siðan breiðst örhratt út.
Ákveðið hafði verið að koma fyrir öflugum slökkviútbúnaði af
allra fullkomnustu gerð um aUt skipið, en ekki var búið að ganga
frá þeim útbúnaði, þegar eldurinn braust út. Þó voru um borð
nokkrar slökkvislöngur með venjulegu vatnsþrýstiafli.
sjóvinnunámskeiðin aðstöðu til
kennslu og verklega æfingu fyr-
ir nemendur sína á slíku æfinga-
svæði, en undir handarjaðri Vél-
skólans (eða SjómannaskólansV
gætu slík námskeið þróast í sér-
stakan skóla.
1 kennslubók farmanna í sjó-
mennsku er fjallað all-ítarlega
um stöðugleika skipa, en stöðug-
leiki varðar að sjálfsögðu örygg-
iseftirlit, einnig eru þar stuttir
kaflar um eldvarnir og skaða á
skipum og er þetta dágott, en
nauðsynlegt væri að æfa þetta
verklega.
Á góðu æfingasvæði gætu yf-
irmenn íslenzkra skipa þjálfað
skipshafnir sínar öðru hverju í
meðferð slökkvitækja.
Þannig yrði:
1) aukið öryggi áhafna —
skipa og farþega þeirra.
2) fyrri kunnáttu haldið við
og hún aukin.
í Fiskimannadeild sjómanna-
skólans og til minna prófs vél-
stjóra ætti skilyrðislaust að
veita góða fræðslu og æfingu í
eldvörnum.
VlKINGUR
21