Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1962, Qupperneq 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1962, Qupperneq 27
Reglugerð um veiðisvæði Stjóm F.F.S.I. barst hinn 15. jan. 1962 bréf frá Fiskifélagi íslands með tillögum um reglur um veiðar með þorskanetjum á svæðinu frá Dyrhólaey vestur að Látrabjargi. Sjávarútv.málaráðuneytið fól Fiskifélagi Islands að hafa á hendi verkefni þetta, og um leið að hafa samráð við þau samtök sjómanna, er þetta mál varða. Sambandsstjórnin sendi þeg- ar tillögur Fiskifélagsins til við- komandi sambandsfélaga — og Afsakið, ég keypti hér í gær meðal móti rauðu nefi, en í dag er það orðið blátt. —- Nú jæja, hvaða litur er það eiginlega, sem þér viljið hafa á nefinu? * Hérna eru stígvélin yðar, sagði skósmiðurinn við pólfarann, voruð þér ánægðir með þau, sem ég bjó til fyrir síðustu pólförina? — Já, ég hefi satt að segja aldrei smakkað betri stígvél. — Og þú ert búinn að fá þér varð- hund. ■—- Já, það má nú segja, ég hefi ekki komist inn í búðina í þrjá daga. * Andrés piparsveinn tók upp á því að gifta sig. Daginn eftir fékk hann heimsókn af tryggingarmanni, þar sem þú ert nú giftur er ráðlegt fyrir þig að kaupa líftryggingu. Ónei, svo hættuleg er hún nú ekki. a — Hvar skyldl nýl loftskeytamaSorlnn hafa tekið próf? VÍKINGUE birtast hér á eftir samþykktir fjölmeimra funda, er haldnir voru um þetta efni, í þeirri röð, sem þær bárust sambandsskrif- stofunni. Skipstjóra- og stýrimannafél- agið HAFÞÓR, Akranesi: „Fundur haldinn í Hafþór 15. jan. ’62, samþykkir að mótmæla tillögum Fiskifélagsins dags 12. jan. 1962. Telur fundurinn til- lögurnar algjörlega óraunhæfar og óframkvæmanlegar. — Hins- vegar telur fundurinn tímabært að friða viss svæði um hrygn- ingartímann". Samþykkt einróma af 30 starfandi skipstjórum og stýri- mönnum á Akranesi. Skipstjóra- og stýrimannafél- agið KÁRI, Hafnarfirði: „Fundur haldinn 16. jan. ’62 mótmælir harðlega framkomn- um tillögum, þeim, sem sendar voru okkur til umsagnar þann 12. jan. ’62 af stjórn F.F.S.I., sem hníga í þá átt að skerða stórkostlega athafnafrelsi til veiða með þorskanetum og er það einróma álit fundarins, að slíkar fáránlegav tillögur eigi engan tilverurétt og beri á eng- an hátt að Ijá slíkum tillögum eyra, sem grundvöll fyrir reglu- gerðasetningum af mönnum — sem virðast ekki bera neitt skynbragð á, hvað slík reglu- gerðasetning mundi skerða hag íslenzkrar sjómannastéttar og þjóðarbúið í heild,, eins og mál- um er háttað í dag og skorar fundurinn því á stjórn F.F.S.I. að vísa þessum tillögum tafar- laust heim til sinna föðurhúsa". Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Skipstjóra- og stýrimannafél- agið VÍSIR, Keflavík. Á aðalfundi félagsins hinn 21. jan. 1962 voru samþykkt ein- róma mótmæli gegn tillögum Fiskifélags Islands um reglur um veiðar með þorskanetum á svæðinu frá Dyrhólaey vestur að Látrabjargi og þeim vísað frá sem óraunhæfum. Skipstjóra- og stýrimannafél- agið ÆGIR, Reykjavík. Tillögur Fiskifélagsins virðast miða að því, að veita línubátum meira svigrúm en áður og fela í sér nokkrar takmarkanir á netalögnum, sem er spor í rétta átt og til bóta frá því, sem ver- ið hefur, sérstaklega það ákvæði að banna netalagnir á meira dýpi en 180 m. Það er þó álit ÆGIS, að hér sé of skammt farið og nauðsyn beri til að friða algjörlega á- kveðin hrygningarsvæði fyrir netalögnum á svæði því, sem fellur undir 1. lið í tilhögun Fiskifélagsins. Á það skal bent, að í tilhögun Fiskifélagsins eru engin ákvæði um togveiðar eða rétt togveiði- skipa til ákveðinna veiðisvæða, en það hefði verið eðlilegt að skapa þeim einhvem rétt, þar sem með framkomnum tillögum er farið inn á þá braut, að skipta veiðisvæðum milli báta- flotans eftir veiðarfærum. Skipstjóra- og stýrimannafél- agið VERÐANDI, Vestmanna- eyjum bendir á, að tillögur um takmörkun netaveiðisvæða séu óþarfar á veiðisvæðum Vestm. eyjabáta, þar sem ekki hefur verið um teljandi árekstra að ræða milli neta- og línuveiða. — Takmörkun um fjölda þorska- neta teljum við leysta með ný- fiskmatinu. Talonarkanir þessar eru enn óskiljanlegri, þar sem ekki virðist eiga að takmarka veiðisvæði SA.-A.-N.-lands eða undan Vestfjörðum, þó vitað sé, að þorskanetaveiðar verði stund- aðar á sumum þessara svæða í vetur — og fari vaxandi. Með féltgskveðju. f. h. S. S. VERÐANDI. Júlíus Sigurösson. 27

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.