Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Side 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Side 40
rýrnandi. Þróun lúðuveióanna er mjög lík þróun kolaveiðanna að öðru leyti en því, að heildarafla lúðu hrakar miklu örar og dagveiðin breytist mjög lítið eftir stríðið. Meðalveiðin á 100 togtímum 11 vættir 1922—29, en aðeins 8,6 vættir 1930—37. Sýnist það vera greinilegt, að stofninn hefur dregizt mjög saman. Við höfum nú lokið því að athuga ýsu, skarkola og lúðuveiðarnar við ísland, og höfum komizt að þeirri niðurstöðu, að stofnar þessara þriggja teg- unda hafi látið mjög á sjá, vegna hinna áköfu veiða“. Þetta eru helztu kaflarnir, sem okkur varð- ar úr nefndum fyrirlestri, en það eru líka rök og tölur sem tala. í síðasta fyrirlestrinum segir svo: „Ég hef reynt að sýna fram á það í þessum fyrir- lestrum, að ránfiski á sér stað í mörgum greinum togaraveiðanna í NV-Evrópu. Hér er tvennt öðru- vísi en skyldi. í fyrsta lagi er of mikil veiðisókn, sem veldur því, að aflinn er fyrir neðan það há- mark, sem hann gæti staðið á. f öðru lagi er fisk- urinn veiddur of ungur, en með því er sóað til ónýtis mergð af undirmálsfiski, sem ætti að njóta lífs og vaxtar í sjónum. Róttækar reglur um möskvastærð geta ráðið bót á síðar talda bölinu, en við hinu fyrr talda er aðeins ein róttæk bót, sem sé minnkun fiskveiöa“. Fyrir okkur fslendinga er minnkun fiskveiðanna í þessu þrennu fólgin: 1. Aö frióa hin íslenzku mið fyrir ágangi Breta og annarra útlendinga, 2. að friða þau fyrir innlendum togurum og dragnófabátum og 3. búa svo sjálfir að sínu. Viðauki. Nú, eftir að ég hef lokið ritgerð minni, „Rýmkun landhelginnar lífsskilyrði fyrir íslenzku þjóðina", berst mér ýtarlegt erindi frá herra Bjarna Eiríks- syni, kaupmanni í Bolungarvík, þar sem hann gerir mjög merkilega grein fyrir bæði út- og inn- miðum við ísafjarðardjúp. Er ég honum þakklátur fyrir að hafa samið það. Þegar hann hefur lokið lýsingu miðanna, gefur hann stutta en gagnorða lýsingu á fiskiveiðunum við Djúpið og hvernig litið er á gagnsemi hinnar nýju friðunarlínu fyrir Vestfirði, og tel ég rétt að birta hana sem viðauka við framannefnda ritgerð, sökum þeirrar miklu þýðingu, sem fiskiveiðamar hafa fyrir afkomu manna við ísafjarðardjúp og fyrir Vestfirði yfirleitt. Hún er í aðalatriðum þannig: „Árabátar og síðar litlir vélbátar réru að jafn- aði ekki utar en á Kögur og mið þar inn af og í Djúpið, einkum á vorin, nema þá sérstaklega góðar gæftir væru. En er vélbátar stækkuðu í 5—8 lestir, var mjög oft sótt lengra út eftir fiskstöðu. Nú síðustu árin, er bátar stækkuðu ennþá meir, 20—70 lestir, er oftast sótt 20—40 sjómílur út frá Deild. Helzt von á að fá afla svo langt undan landi og vestur allt til Látrabjargs og norður með Ströndum allt austur fyrir Horn. Landhelgislínan (þriggja sjómílna) er hér út af Deildinni um Kvíarmið, en nýja friðunarlínan um Kögurinn, en er utar eftir því sem norðar dregur og innar eftir því sem sunnar dregur. Lúðuveiði sem sérveiði hefur ekki verið stunduð héðan þau 35 ár, sem ég hef dvalið hér um slóðir, aðeins stöku sinnum verið lögð fá sprökusnæri og þá einkum um öskubakinn og Kambana, en lúða veiðist hér á öllum miðum síðari hluta vetrar og mest vor og sumar á fiskilóðir, en yfirleitt fremur smá af eðlilegum ástæðum. Venjulegar lóðir halda illa stórlúðu að jafnaði. Lúða hefur oft veiðst vel, þegar friður er á miðum fyrir botnvörpuveiðum, svo sem var í fyrri heimsstyrjöldinni og hinni síðari og fyrstu árin eftir þær. Ég ætla svo að lokum að minnast lítillega á fisk- göngur hér fyrr og nú, og mitt álit á hinni nýju friðun og áhrifum hennar á fiskiveiðar hér um slóðir. Fiskgegnd virðist mikil út af Vestfjörðum, sbr. góður afli togara á Halamiðum og víðar á djúpmið- um fyrr og síðar. Afli var hér líka góður á stríðsárunum og fyrstu árin þar á eftir, en hefur síðan farið minnkandi meðárihverju. Fiskinum er eytt á djúpmiðum jafn- óðum og hann gengur upp á landgrunnið. Síðast- liðinn vetur voru oftast stórhríðar og stormar frá því um miðjan desember og fram eftir janúarmán- uði, svo að togveiðiflotinn gat ekki nema öðru hvoru verið við veiðar og mjög sjaldan á dýpstu miðum. Þá brá svo við, að fiskur gekk hér inn í Djúp, og var góður reytingur í janúarmánuði inni í Djúpinu. Á þeim tíma hefði vart verið farnar nema 3—4 sjóferðir sökum ótíðar, ef þurft hefði að sækja út á haf. Síðar tók fyrir þennan afla, þar sem engin ný fiskganga kom eftir það, og var það steinbítsaflinn sem bjargaði vertíðinni úr því. Ég held, að útfærsla landhelginnar fyrir Vest- fjörðum komi að minna gagni hér en víðast ann- arsstaðar. Hér eru engir stórir flóar og landgrunn- ið svo víðáttumikið og löng leið fyrir fiskigöngur jnn fyrir línuna, svo að togveiðiflotinn eyðir þeim og tvístrar, áður en þær komast svo langt. Við frið- un annarra fiskislóða einkum fyrir Suður- og Vesturlandinu, þar sem togarar og togbátar hafa áður stundað veiðar, sækja þeir stórum meira á Vestfjarðamiðin. Við Vestfirðingar væntum því ekki mikils árangurs fyrir okkur af stækkun land- helginnar, nema síður sé, eftir útliti að dæma. Aft- ur á móti býst ég við, að útilokun dragnótaveiði muni hafa veruleg áhrif á veiðar til hins betra á fjörðum inni og á grunnmiðum". Þetta og það sem áður var í ritgerð minni sagt um Vestfirði, gefur ástæðu til þess að fiskgöngum þar sé sérstakur gaumur gefinn. 304 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.