Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Page 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Page 46
Hvers vegna vilja íslendingar færa út landhelgina? eftir Jóhann J. E. Kúld. Þar sem ýmsir hafa óskað eftir því við mig, að ég birti á prenti ávarp það, sem ég flutti í Þránd- heimi « sl. hausti þegar ég mætti þar fyrir hönd Alþýðusambands lslands,sem boðsgestur hjá Norg- es Fislcerlag, þá birti ég hér með meginhluta ávarps míns laus- legri þýðingu minni. Áður fyrr, á meðan hvorki var til útvarp, sjónvarp eða dagblöð, þá spurðu gestgjafar gjarnan gesti sem komu í heimsókn, hvað þeir segðu í fréttum. Og þar sem ég er nú gestur ykkar þá vil ég skýra ykkur, hér á þessu þingi, frá þeim tíðindum, sem stærst eru að gerast á íslandi. Eg vil segja ykkur frá því, að við Is- Iendingar höfum ákveðið að færa út okkar fiskiveiðilögsögu í 50 mílur 1. sept. 1972. Við erum neyddir til að stíga þetta mikils- verða spor í landhelgismálinu nú. Aðgerðir af okkar hálfu þola ekki lengri bið. Og nú þegar ég stend hér meðal vina á lands- þingi í Noregs Fiskarlag, þá vil ég gjarnan segja ykkur hvað það er, sem knýr okkur til aðgerða nú í landhelgismálinu. Að okkar mati þolir útfærsla landhelginn- ar í 50 mílur enga bið. Á milli 80 og 90% af útfutningstekjum okkar Islendinga árlega koma frá seldum fiski og fiskafurðum. Það þykir gott þegar 15% af erlendum gjaldeyri sem við öfl- um kemur fyrir aðrar vörur. Þjóð sem á þann hátt er bund- in hafinu með alla afkomu sína, ber skylda til að standa vörð um fiskimið sín og sjá um að þau séu ekki eyðilögð. Fiskimið- in eru fjöregg hennar og dýr- mætasta eign. Þeir sem hafa rannsakað sög- una halda, að árið 1000 hafi verið 300 þúsund íbúar hér í Noregi og um 100 þúsund íbúar á Islandi á sama tíma. En nú eru í kringum 4 milljónir íbúa hér í Noregi, en ekki nema 200 þúsund íbúar á fslandi á sama tíma. Þannig léku örlögin hina íslenzku þjóð grátt um aldir. Á 16., 17., 18. og 19. öld lá nærri, að hinni íslenzku þjóð væri út- rýmt. Á þeim öldum skorti okkur fslendinga mat. Og okkur skorti líka haffær skip, tií að sækja fisk á okkar gjöfulu mið. í gegnum þessa dýrkeyptu reynslu lærð- um við þann sannleika að við þurfum á öllum tímum að eiga traust fiskiskip og að okkur ber skylda til að standa vörð um fiskimið okkar, sem eru íslands stærsta eign og á varðveizlu þess- arar eignar veltur afkoma okk- ar þjóðar á hverjum tíma. Á árunum sem liðin eru frá lokum síðustu heimsstyrjaldar hefur ásóknin í fiskistofna á ís- landsmiðum verið of hörð, þann- ig að um samdrátt stofnanna er að ræða, þeir minnka. Stærsta orsökin fyrir þessari staðreynd er sú, að mörg hundruð erlendra togara hafa sótt á þessi mið ár- ið um kring. Það er þessi erlendi floti, sem hefur veitt helming- inn af þeim fiski sem veiddur hefur verið yfir þetta tímabil. Það var þessi ástæða sem knúði okkur íslendinga til að færa út fiskveiðilögsöguna úr 4 mílum í 12 mílur 1958. Nú liggur það hins vegar ljóst fyrir, að þessi útfærsla var ekki nægjanleg til að fyrirbyggja rányrkju á mið- unum. Ég vil bregða hér upp smámynd af þróuninni á okkar miðum gegnum árin. Árið 1920 gat brezkur togari aflað 1000 kg. af ýsu á miðunum við Island yf- ir sólarhringinn. En árið 1937 er þessi afl'i kominn niður í 250 kg. á sólarhring. Á tímabilinu frá 1928 til 1937 minnkar ýsu- aflinn sem tekinn er á miðun- um við Island, úr 60 þús. tonn- um á ári niður í 28 þús. tonn. Og yfir þetta tímabil féll ýsu- afli okkar íslendinga úr 11 þús. tonnum á ári niður í 4 þúsund tonn. Á síðustu stríðsárunum veiddi aðeins fiskiskipafloti okk- ar Islendinga á miðunum við Is- land og á því tímabili stækkuðu fiskistofnarnir mikið. Árið 1949 fer ýsuaflinn á Islandsmiðum upp í 76 þúsund tonn. En þrem- ur árum síðar, 1952, þegar er- lendur togarafloti hefur lagt und- ir sig miðin að nýju, þá fer ýsu- aflinn niður í 46 þúsund tonn. Þetta er spegilmynd af þróun- inni. Á líkan hátt hefur það gengið með íslenzka þorskstofn- inn; hann fer minnkandi. Hinn geysilega stóri hrygningarþorsk- ur sem var algengur áður fyrir S.-íslandi á vetrarvertíð, verður sjaldséðari með hverju ári sem líður. Fiskifræðingar okkar segja Jóhann J. E. Kúld. VlKINGUR 310

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.