Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Síða 6
Haraldur Henrysson:
Frá Hafréttarráðstefnunm
Samskipti þjóða og reglur um
þau hafa tekið miklum breyting-
um á undanförnum áratugum og
munu sjálfsagt taka enn meiri
breytingum í náinni framtíð. Ný
viðhorf og skoðanir hafa skapast,
sem þótt hefðu fjarstæðukennd
ekki alls fyrir löngu. Þetta á auð-
vitað fyrst og fremst rætur að
rekja til þess hve heimsmyndin
hefur breyst. Fjöldi þjóða hefur
komið til sögunnar, er áður voru
öðrum háðar og gátu engin áhrif
haft á mótun réttarins. Þessi
ríki láta nú æ meira að sér kveða
og krefjast þess réttar, sem þau
telja sig eiga með réttu. Það er
í rauninni ekki undarlegt þótt
það taki samfélög þjóðanna nokk-
urn tíma að aðlaga sig hinum
nýju aðstæðum og finna þær
lausnir, sem allir geta sætt sig
við.
Bylting í hafréttarmálum
Á undanförnum áratugum hef-
ur mikil vinna verið lögð í það á
126
alþjóðavettvangi að semja al-
þjóðalög um hafið og hina marg-
víslegu nýtingu þess. Þannig
voru haldnar alþjóðaráðstefnur á
vegum Sameinuðu þjóðanna 1958
og 1960 í þessu skyni, en þeim
tókst ekki að leysa verkefnið
nema að mjög litlu leyti. Þessar
ráðstefnu mótuðust mjög af
hefðbundnum sjónanniðum
„gamla heimsins“ um nýtingu
hafsins og auðlinda þess. Það
þekkjum við íslendingar best,
sem vildum ganga í berhögg við
þær reglur, er nágrannaþjóðir
okkar höfðu mótað í samræmi
við sína hagsmuni og vildu um-
fram allt festa í sessi til fram-
búðar. Á þeim tiltölulega skamma
tíma, sem liðinn er síðan fyrr-
greindar ráðstefnu voru haldnar,
hefur orðið bylting í viðhorfum
til hafréttarmála. Þessi bylting
hefur að verulegu leyti átt sér
stað nú síðustu 4—5 árin eftir
að tekið var að undirbúa þriðju
hafréttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna. Það er fyrst og fremst
„nýi heimurinn", þ.e. hinar ný-
frjálsu þjóðir heims, sem hafa
gert slíka byltingu að veruleika.
Mikilvægur árangur fyrir okkur
Þegar þessi orð eru sett á blað
eru liðnar tæpar fjórar vikur af
fundi 3. hafréttarráðstefnunnar
í Genf í Sviss. Þegar þetta blað
kemur fyrir sjónir lesenda, verð-
ur þessum fundum hins vegar
lokið og öllum kunnugt um úrslit
þeirra. Best er því að fara var-
lega í spádómum. Eins og mál
standa þegar þetta er ritað, virð-
ist fremur ólíklegt að endanleg
heildarniðurstaða náist á þessum
fundum nú þótt margir hafi von-
ast til að svo yrði. Til þess að svo
geti orðið sýnast enn óútkljáð of
mörg deilumál.
Þrátt fyrir þetta er engan veg-
inn hægt að halda því fram að
það starf, sem hér hefur verið
unnið hafi verið til einskis og allt
standi í sömu sporum. Þvert á
VÍKINGUR