Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Blaðsíða 19
þetta séu nothæf skip á þessar veiðar. Svona hefur þróunin verið. Trillubátar vcr«Va áfram gcrðir út — Tugarastillinn a«V brcytast — Ég er ekki svo mikill bylt- ingamaður, að ég vilji leggja hömlur á trillubáta, línu- og netabáta í gamla stílnum. 1 lieimabæ mínum eru tugir af trillubátum, sem ganga til veiða á sumrum og fólkið er hamingjusamt. Meginstefn- una í hráefnisöflun verður hins- vegar að móta af stjórnvöldum, þótt nauðsynlegt sé líka að við- fangsefni almennings í útgerð fái að þróast, sem verið hefur. Við sitjum uppi með allskonar báta, sem í raun og veru hafa ekki verðug viðfangsefni nema um blá vertíðina. Þetta eru gaml- jr bátar, mestan part. Hin opin- bera stefna á að vera fólgin í því að tryggja skip, sem geta aflað hráefnis allt árið og veitt sjó- mönnum okkar þau bestu skil- yrði, sem unnt er að veita. Togarastíllinn er að breytast. Við heima þekkjum þetta orðið vel, því við höfum áratuga- reynslu af togurum og nokkurra ára reynslu í útgerð skuttogara. Þegar skipin koma að landi, stendur skipshöfnin upp á búin og fer í land, þegar búið er að binda. Þá taka gamlir sjóarar og kafteinar við og sjá um allt um borð og þegar skipið siglir á veiðar eftir sólarhring, eða svo, er allt klárt og búið að sjóbúa og jafnvel búa um rúmin og elda mat. Túrinn tekur aðeins viku, eða svo. Það heyrir til liðnum tíma að togarar séu á veiðum 15—20 daga eins og víða tíðkast enn og svo er gumað af því á eftir í blöðunum, að þessi og hinn hafi landað svo og svo miklum afla og svo fer mikið af þessu í 2. og 3. flokk, segir Lúðvík Jósepsson, alþingismaður, að lokum. Skoðun og viðgerðir gúmmíbáta allt árið. Kókosdreglar og ódýr teppi fyrirliggjandi. GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN Grandagarði 13 - Simi 14010 Skipamálning - Utanborðsmálning Botn- málning - Lestalakk - Lestaborðlakk Skipalakk - HARPA HF. VÍKINGUR 139

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.