Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Blaðsíða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Blaðsíða 7
móti má segja að á sumum svið- um hafi málum þokað ótrúlega fram. Má fullyrða að nú hilli loks undir lokaáfanga og ótvírætt samkomulag er um ýmis mikil- væg atriði. Bg nefni hér aðeins þau mál, sem okkur skipta lang- mestu, þ.e. réttindi ríkja til auð- æfa undan ströndum sínum. Það sýnist nú ótvírætt að almennt sé viðurkenndur réttur strandríkja til að helga sér svæði allt út í 200 sjómílur frá grunnlínum til hvers konar nýtingar allra auðæfa, sem þar finnast, og til allra ráðstaf- anna er þau telja nauðsynlegar þeirra vegna. Slík lögsaga er nefnd efnahagslögsaga. Hins vegar verði hin eiginlega land- helgi minni eða líklega 12 sjómíl- ur. Það sýnist almennur skilning- ur að strandríkið eigi að hafa al- geran forgangsrétt til nýtingar allra auðæfa, lifandi sem dauðra, innan efnahagslögsögunnar. Rætt er um að geti strandríkið ekki veitt allt það fiskmagn, sem vís- indalega er sannað að veiða megi á svæðinu, eigi það að veita öðr- um þjóðum aðgang að því sem umfram er. Sem stendur er óvissa um það hver eigi að úr- skurða og ákvarða um getu strandríkis til að ná hinu eðlilega hámarksmagni, en ísland og önnur strandríki halda því fast fram að strandríkið eigi sjálft að ákveða um þessi atriði en aðrir vilja fela það í hendur alþjóðleg- um stofnunum. En þrátt fyrir ýmis slík vafa- atriði, sem enn er deilt um, er hitt þó mikilvægast, að grundvall- arreglan, 200 mílna efnahagslög- saga, er almennt viðurkennd og verður vart haggað úr þessu. Hlýtur það að vera okkur Islend- ingum fagnaðarefni því það tákn- ar væntanlega endanlegan sigur í harðri baráttu okkar fyrir óskor- uðum yfirráðum yfir fiskimiðun- um umhvefis land okkar. Það er í rauninni mikil furða hve hröð þróun þessara mála hefur orðið. Hver hefði trúað þessu, jafnvel 1972, þegar fiskveiðilögsagan vai færð út í 50 sjómílur og mætti harðri andstöðu? Nú eru meira^ VÍKINGUE að segja sumir hörðustu and- stæðingar okkar þá orðnir fylgj- endur 200 mílna efnahagslög- sögu. Nú er ákveðið að færa út efnahagslögsögu okkar í 200 míl- ur á þessu ári og verður vart ann- að sagt en að staðan til þess sé hagstæð nú í ljósi þess sem að ofan er sagt, þótt formlega hafi þetta ekki hlotið staðfestingu á alþjóðavettvangi enn. Margvíslega önnur verkefni Hafréttarráðstefnan fjallar að sjálfsögðu um margt annað en landhelgi, efnahagslögsögu og fiskveiðar. Fjöldi misjafnlega viðkvæmra vandamála eru þar til meðferðar og eru sum víst vanda- minni en þau sem við höfum mest- an áhuga á. Áður en horfið er frá ofangreindum vandamálum er samt rétt að geta ágreiningsat- riða þeim tengdum, sem geta skipt okkur töluverðu. Þetta varðar óbyggðar eða lítt byggð- ar eyjar langt frá ströndum heimaríkisins. Hvort þær eiga að hafa eigin efnahagslögsögu. Eiga Norðmenn t.d. að geta helgað sér efnahagslögsögu í kringum Jan Mayen og Bretar í kringum Rock- all? Báðar þessar þjóðir hafa áhuga á slíku. Þetta myndi að sjálfsögðu skerða efnahagslög- sögu okkar þar sem styttra er en 400 mílur til þessara eyja. Eitt mikilvægasta verkefni hafréttarráðstefnunnar varðar stjórn á hafsvæðinu utan lögsögu einstakra ríkja, en það svæði er í hátíðlegum yfirlýsingum nefnt „sameiginleg arfleifð mannkyns". Hafsbotninn hefur að geyma ým- iss konar málma og efni, sem nýta má til margra hluta og er þegar fyrir hendi mikill áhugi á að auka rannsóknir á þessu sviði og hef ja vinnslu. Ráðstefnan á að setja reglur um þá alþjóðastofn- un, sem hafa á með höndum stjórn þessa svæðis og ákveða nýtingu þess. Hér togast á margs ^jjíonar hagsmunir, m.a. tækniþró- aðra ríkja, sem bíða með óþreyju -»eftir að því takast á við þessi verkefni og hefja vinnslu, og svo ,, hins vegar hagsmunir hinna van- llþróuðu ríkja, sem ekki vilja missa af arðinum af þessari nýt- ingu. Mengunarmál hafsins Á síðustu árum hefur mönnum æ betur orðið ljós nauðsyn þess að verja hafið gegn alls kyns mengun, hvort sem hún kemur frá landi eða frá skipum. Um- gengni við hafið hefur mótast mjög af því að „lengi taki sjór- inn við“ en nú sjá menn að þessu sem öðru eru takmörk sett. Það er eitt af verkefnum ráðstefn- unnar að setja heildarreglur um þessi efni. Þótt allir séu hins veg- ar sammála um nauðsyn slíkra reglna þá eru menn langt frá því að vera sammála um leiðir að markinu en sá skoðanaágreining- ur endurspeglar venjulega mis- munandi hagsmuni ríkja. Mikil deila er t.d. um það hvernig regl- ur eigi að gilda varðandi mengun frá skipum, hver eigi að geta sett slíkar reglur og framfylgt þeim, ef á þarf að halda. Mörg strand- ríki, þ. á m. ísland, hafa lagt til að strandríki eigi að geta sett reglur um þessi efni í efnahags- lögsögu sinni og framfylgt þeim gagnvart skipum annarra þjóða, sem þar sigla um. Önnur ríki, sem eiga mikla skipaflota, og vilja tryggja sem greiðastar sigl- ingar, telja að alþjóðlegar reglur eigi að gilda um mengunarvarnir í sem ríkustum mæli og síðan eigi heimaríki skipsins aðallega að annast refsiframkvæmdina en strandríki eigi yfirleitt ekki að geta truflað siglingu skipsins. Ég hef sett hér á blað nokkrar hugleiðingar um starf og við- fangsefni hafréttarráðstefnunn- ar. Ég bið menn að minnast þess að þetta er skrifað þegar fund- irnir í Genf eru hálfnaðir og því ekki unnt að gera sér í stórum dráttum grein fyrir því hver verður endanlegur árangur af þeim. Það er hins vegar von mín að þessar hugleiðingar hafi getað orðið til að gefa lesendum ein- hvern fróðleik um verkefni og störf ráðstefnunnar. Að lokum óska ég öllum sjó- mönnum gleðilegs sjómannadags. Haraldur Henrysson. 127

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.