Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Blaðsíða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Blaðsíða 28
Guðjón F. Teitsson, forstjóri: Um strandsiglmgaþjónustu Vert sýnist að vekja athygli á því, hversu mjög strandferða- farmgjöld — án tillits til vega- lengda innanlands — hafa á síð- ari árum dregizt úr samræmi við farmgjöld í millilandaflutning- um, og skal tekið dæmi um 1. flokk í farmgjaldaskrá Eimskipa- félags íslands og strandflutninga, sem ætti að gefa allgóða hug- mynd um þetta, en í nefndum farmgjaldaflokki eru m.a. eftir- greindar vörur: asfalt, tjara, smurolíur, smjörlíkisefni, steypu- styrktarjárn, smíðajárn, stálrör, gaddavír, naglar, þakhellur, syk- ur, kaffibætisefni, hafrar, hafra- mjöl, sagógrjón o. fl. o. fl. í kringum 1930 mun hafa verið algengast að nota shillingataxta fyrir vörur í nefndum flokki milli hafna Norðvestur-Evrópu og Is- lands, og var hann þá 45 shilling- ar eða um 50 ísl kr. á 1000 kg, þegar strandflutningataxtinn var 30 kr. eða 60% af hinum. Nú í marz 1975 lítur saman- burðurínn út sem hér greinir fyr- ir 1000 kg vara í nefndum flokki: Þess skal getið, að 50% verð- hækkun olíu frá því fjárlög voru undirbúin mun án sérstakra bóta auka hallarekstur Esju, Heklu og Herjólfs um u.þ.b. 19 millj. kr. á ári, en miðað við það þarf senni- lega í núverandi stöðu nálægt 123% meðgjöf, með flutnings- gjöldum yfir árið til þess að mæta hallanum. Það má og telja athyglisvert í sambandi við strandsiglingaþjón- ustuna, að á 30 árum 1930—1959 námu rekstrarfjárframlög ríkis- ins til strandferða Skipaútgerðar ríkisins að meðaltali rúmlega 15% miðað við framlög ríkisins til vega og brúa, en nú hefur þetta raskazt svo, að hlutur nefndra strandsiglinga er kominn niður í 3—4% miðað við vegafé og stafar þetta auðvitað af mik- illi fjárfestingu í nýlagningu vega með fylgjandi auknum kostnaði við snjómokstur og við- hald, m.a. af því að hinir þungu flutningabílar, sem mest keppa við Skipaútgerðina, valda yfir- gnæfandi mestum vegaskemmd- um án þess að greiða nokkuð sér- staklega vegna þess. Er eftir- greint til frekari athugunar í þessu sambandi: 1. Brjóti skip planka í bryggju eða geri aðrar skemmdir á bryggju eða bólvirki verður út- gerð þess að greiða tjónið beint eða gegnum vátryggingu sína, en þótt 20—30 tonna langleiðabíll með farmi risti gegnum slitlag þjóðvega eða skemmi þá að meira eða minna leyti, e.t.v. á samanlagt mörg hundruð km kafla í aðeins einni ökuferð að vordegi, þá borgar bíleigandi yfir- leitt ekkert aukalega vegna þess, tjónið bætist af almannafé og sama er að segja um snjómokst- ur til að lengja mögulegan starfs- tíma bílanna. 2. Strandferðaskip ríkisins hafa aldrei haft neitt sérleyfi. önnur skip, bílar og flugvélar hafa mátt keppa við strandferða- skipin að vild um bitastæða flutn- inga eða velja úr þægilegar vör- ur með arðvænlegasta farm- gjaldi, en skilja hinar eftir handa þeim, sem samgöngu- eða flutn- ingaskylda hvíldi á, þ.e. strand- ferðaskipunum. Að öðru leyti hafa strandferðaskipin heldur ekki verið starfrækt á venjuleg- um viðskiptagrundvelli, sem gæfi að jafnaði möguleika til að þau bæru sig f járhagslega. 3. Strandferðaskipin rekja hafnir samkvæmt fyrirframgerð- ur ferðaáætlunum án tryggingar lágmarksverkefna eða lágmarks- tekna. Stundum flytja þau e.t.v. einn sjúkling, sem erfitt á með að ferðast á annan hátt, stundum einn kassa með vél eða varahlut- Millilandafarmgjöld Farmgj. gengi ísl. kr. Frá Bretlandi £ 17.10 324/— 5.540 Frá Noregi N. kr. 296.00 27/24 8.063 Frá Rotterdam og sagt svipað frá Antwerpen og Khöfn Hfl. 149.00 56/76 8.457 Frá Hamborg 148 DM. 167.00 58/13 9.708 Strandferðafargjöld 60% af eftir 40% Mætti hækka greindu hækkun til að ná 60% 60% af farmgj. 10/3 ’75 hlutfalli fyrir greindu kr. kr. síðustu heims- farmg. kr. styrjöld 3324 3324 1990 67% 4338 4838 1990 143% 5074 5074 1990 155% 5825 5825 1990 193% VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.