Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Page 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Page 15
Gamli og nýi tíminn. Harðbakur við bryggju og Sólbalc ur EA 5 að fara í sína fyrstu veiðiferð. „Þessi nýju skip bafa veitt togarsjómönnum ólíkt betri vinnuaðstöðu en þeir liöfðu.“ að skip, sem keypt voru erlendis frá fengu lítil lán. Aðeins var lán- að út á 67% af andvirði skip- anna. Kaupendur slíkra skipa urðu því að vera reiðubúnir til þess að leggja fram þriðjunginn af kaupverðinu eða um 33%, Það réðu menn sýnilega ekki við. Var það að ráði að heimildar var aflað handa ríkisstjórninni til þess að veita ríkisábyrgð fyrir 80% af andvirði skipanna, þ. e. a. s. 13% umfram það sem Fisk- veiðisjóður átti að veita. Síðan tók við hin almenna regla, sem hafði verið í gildi, að byggðasjóð- ur, eða atvinnujöfnunarsjóður bætti við 5% a. m. k. þegar þeir vildu gera það. Með þessu móti áttu margir aðilar að geta fengið um 85% af andvirði skipanna að láni. Jafnframt knúðum við á er- lenda aðila, sem ætluðu að smíða þessi skip, að við yrðum að fá a .m. k. 80% af andvirði skip- anna að láni og þá til a.m.k. átta ára, ef ríkisábyrgð yrði veitt. Enginn gat fengið þessi skip keypt, nema að viðskiptabanki hans staðfesti við ríkisstjórnina að þessi 15% væru til staðar. Þetta var hin almenna regla. Fáeinir smástaðir fengu sér- staka aðstoð byggðasjóðs eða 5% viðbótarlán. Þetta voru staðir, sem ekki höfðu bolmagn til skipa- kaupa og sem talið var nauðsyn- legt að aðstoða sérstaklega. 500 tonna skuttogarar svna bcsta útkomu allra fiskiskipa — Nú telja margir að rekstar- grundvöllur þessara sJcipa sé mjög bágborinn, að ekki sé meira sagt. Er rekstrargrundvöllurinn vem en hann var, eða keyptum viS ranga skipagerð ? —Áður en ég svara því sér- staklega, vil ég í framhaldi af því sem áður var sagt, geta þess að ríkið ákvað ekki skipafjöld- ann, heldur vissi ríkisstjórnin hvaða geta var fyrir hendi, eftir að skilyrðin voru rýmkuð. Ríkisstj órnin ákvað ekki að kaupa 20 eða 30 skip. Nei, talið var að allir sem uppfylltu skil- yrðin og lögðu fram tilskilið fé ættu að geta fengið skip og það kom í ljós að mjög almennur vilji var fyrir hendi og það réði raunverulega skipafjöldanum. Byggðasjóður hjálpaði svo nokkr- um og það sýnir, að mjög al- menn tiltrú var á fyrirætlanir okkar í ríkisstjórninni. Spurningin var því um það, hvort það ætti að stöðva menn eða gefa þeim öllum sama rétt, VÍKINGUR 135

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.