Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Blaðsíða 21
námskeið fyrir vélstjóra og
vélgæslubók á íslensku
Mikil framleiðsluaukning og
umtalsverð áætlanagerð er á döf-
inni hjá Wichmann Motorfabrik
A/S á Rubbestadnesinu í Noregi.
Árið 1902 var fyrsta vélin
framleidd í vagnhjólaverksmiðj-
unni á Rubbestadnesinu og 8 ár-
um seinna eru fyrstu vélarnar af-
greiddar til íslands.
Á árunum 1910—1930 seldust
f jölmargar vélar til íslands, eink-
um til Austf jarða, og líkuðu þess-
ar vélar vel. Því má með sanni
segja, að Wichmann-vélin hafi
fylgt dyggilega þróunarsögu ís-
lenzkrar vélbátaútgerðar, síðar
síldarútgerðar og nú á seinni ár-
um togaraútgerðar landsmanna.
I dag eru í íslenzka flotanum
um 60 skip með Wichmann-vélar,
þar af 10 togarar.
Mörg af frægustu aflaskipum
flotans eru og hafa verið með
Wichmann-vélum, má þar t.d.
nefna Guðmund Þórðarson, Víði
II, Gísla Árna, Jón Kjartansson,
Börk, ísafold og nú síðasti samn-
ingur, sem verksmiðjan hefur
gert við íslenzka aðila, er vél í
Vestmannaeyj afer j una.
Árið 1974 var netto umsetning
Wichmann Motorfabrik A/S 86
millj. norskra króna og hafði þá
umsetningin aukizt um 30% frá
árinu áður. Hagnaður, reiknaður
fyrir afskriftir, var 4 milljónir.
Veksmiðjan hefur nú eingöngu
beint framleiðslu sinni inn á
framleiðslu aðalvéla fyrir skip,
skrúfubúnað, skrúfuhringi, fjar-
stýrikerfi fyrir aðalvélar og EO-
kerfi (25 klukkustunda ómannað
vélarúm).
Myndin er tekin fyrir utan Hótel
Holt, en þar var nýlega lialdið nám-
skeið á vegum Wiclimann umboðs-
ins fyrir íslenzka vélstjóra. — Frá
vinstri fulltrúi W'ichmann-verk-
smiðjanna, Haldorsen. Til liægri er
Artliur Farestveit lijá E. Farestveit
& Co. hf., sem er umboðs- og þjón-
ustuaðili liérlendis fyrir W'ichmann.
Árið 1974 framleiddi verk-
smiðjan vélar er skila saman-
lagðri hestorkutölu að 83.000, en
áætluð framleiðsla fyrir árið
1975 mun verða yfir 100.000 hest-
öfl.
Vélarnar sem nú eru fram-
leiddar, eru að stærðargráðunni
1000 til 6000 hestöfl, Vélargerðin
sem nú er lögð áherzla á hefur
tegundai'heitið Wichmann AX og
er hún hönnuð í náinni samvinnu
til Tækniháskólann í Þrándheimi
(NTH) einnig fengu verksmiðj-
urnar lánaðan til 2 ára færasta
verkfræðing Norska Veritas til
að vinna að lausn ákveðinna verk-
efna. Það má því með sanni segja
að allir tæknifróðustu aðilar Nor-
egs í vélarfræðum hafi haft hönd
í bagga með framleiðslu þessarar
vélar.
I árslok 1974 var búið að fram-
ieiða 200.000 hestöfl sem bundin
voru í AX vélinni en af þessum
hestöflum fóru 45.000 til skipa
viðkomandi olíuiðnaðinum. Árið
1974 voru 22% af framleiðslu
verksmiðjunnar flutt út, en þá er
ekki miðað við vélar sem fóru í
norsk skip byggð erlendis.
I Noregi annast verksmiðjan
sjálf alla þjónustu fyrir vélarnar,
en á erlendri grund hefur hún
gert samninga við viðurkennd
fvrirtæki á hverjum stað.
I dag spannar þjónusta verk-
smiðjunnar allan heiminn og hef-
ur aðstaða á flugvellinum í Ber-
gen gert það mögulegt.
Verksmiðjan rekur þjónustu-
miðstöð í Tromsö í Norður Nor-
egi. Við þessa þjónustumiðstöð
starfa 14 viðgerðarmenn sem
ávallt eru til reiðu, nótt sem dag,
fyrir norska fiskiflotann. Nú er
verið að setja á stofn dótturfyrir-
tæki í Skotlandi til að bæta úr
þjónustu við þann stóra flota sem
þangað sækir.
Þá halda verksmiðjurnar nám-
skeið í hinum ýmsu löndum fyrir
vélstjóra og vélsmiði. Dagana 5.
6. og 7. maí var haldið námskeið
hér á landi að Hótel Holti fyrir
um 50 vélstjóra og vélsmiði.
Reynslan sýnir að slík námskeið
spara útgerðinni oft stórfé í
varahluta og viðgerðakostnaði.
Einnig hefur verksmiðjan látið
þýða um 170 síðna vélgæzlubók á
íslenzku. Þetta á einnig að vera
til mikilla hagsbóta fyrir íslenzka
vélstjóra.
Sumarið 1974 flutti yfirstjórn
verksmiðj unnar og þróunardeild
inn í nýtt húsnæði um 2000 m-
og eru miklar byggingarfram-
kvæmdir á döfinni næstu 3 árin,
en ætlunin er að 3 falda fram-
leiðsluna á þessum tíma.
Þjónustuaðili fyrir Wichmann
á Islandi er:
Einar Farestveit & Co h.f.
VÍKINGUR
141