Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Qupperneq 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Qupperneq 24
HORFNIR FÉLAGAR t Loftur Júlíusson Fæddur 18. ágúst 1919. Dáinn 9. nóv. 1975. Það var að morgni hins 10. nóvember sl. er ég var staddur úti í Hollandi, að mér barst sú sorgarfregn, að dauðinn hefði höggvið á akkerisfestar vinar míns og fyrrverandi skipstjóra, Lofts Júlíussonar, þá daginn áð- ur. Það kom mér sannarlega á óvart, því að ég hafði átt tal við hann í síma skömmu áður en ég fór af landi brott, og kvaðst hann þá við beztu heilsu. Hann sagðist mundi fagna því innilega, þegar hann fengi að sjá sitt gamla skip bv. Narfa í nýjum búningi, sem skuttogara. Enda var hann fyrsti íslendingurinn, sem hafði stjórn- að slíku skipi, því hann hafði áð- ur verið skipstjóri á enskum skuttogurum og var mikill áhugi hjá honum hvernig til mætti tak- ast með breytinguna á Narfa. Loftur var fæddur í Reykjavík 18. ágúst 1919, sonur merkishjón- anna Elínborgar Kristjánsdóttur og Júlíusar Kr. Ólafssonar yfir- vélstjóra. 13 ára gamall hóf hann sjó- mennsku á togara hér heima. Hann hafði alltaf áhuga á að kanna nýjar slóðir, því aðeins 17 ára gamall réði hann sig á ensk- an togara. Eftir það stundaði hann sjómennsku á íslenzkum togurum og sigldi öll stríðsárin á þeim, að undanteknum þeim tíma, er hann stundaði nám í Stýrimannaskólanum í Reykja- vík. Þaðan lauk hann prófi frá fiskimannadeild árið 1941. Að prófi loknu fór hann sem annar stýrimaður á bv. Gyllir, til hins kunna aflamanns Hannesar Páls- sonar. Loftur var afbragðs sund- maður og eftir að sjómannadag- urinn var stofnaður var hann þar virkur þátttakandi í þeirri íþrótt, og gekk ævinlega með sigur af hólmi. Það skipti sköpum í íslenzkri togarasögu, þegar fyrsti íslenzki nýsköpunartogarinn, happaskipið Ingólfur Arnarson, sigldi inn í Reykjavíkurhöfn, en fyrsti stýri- maður þar um borð var Loftur Júlíusson. Á Ingólfi Arnarsyni var hann stýrimaður og afleys- ingarskipstjóri, þar til hann fór til Hellyersbræðra í Hull og var fiskiskipstjóri á togurunum Nor- man og Roderigo. (Þessir tog- arar fórust síðar báðir. Nonnan strandaði við Hvarf á Grænlandi, en Roderigo fórst út af Vest- fjörðum í NA-stórviðri). Þegar Norðmenn voru að hefja togaraútgerð sína árið 1953 leituðu þeir til Lofts og fengu hann til að takast á hendur skip- stjórn á togaranum Tromstrawl. Þar var hann í eitt ár. Þegar hann kom heim réðist hann fyrsti stýrimaður á bv. Marz hjá Mark- úsi Guðmundssyni. Árið 1954 láta Englendingar byggja sinn fyrsta skuttogara, Fairtry I. Valmaði þá strax áhugi hjá Lofti á skut- togurum og fylgdist hann vel með gangi þessa skips og hvernig skuttogaraveiði þróaðist í hönd- um hins kunna skipstjóra, Leo Romain. Árið 1958 er Loftur kominn um borð í Fairtry I, fyrst á dekkið sem háseti og síðar sem annar stýrimaður og skömmu síð- ar sem fiskiskipstjóri. Salversens útgerðin kunni að meta hæfileika Lofts, því að á árunum 1959 og ’60 hefur hann eftirlit með bygg- ingu verksmiðjutogaranna Fair- try II og Fairtry III í Renfrew. Eftir það er hann fiskiskipstjóri á þessum togurum sitt á hvað, því þetta voru skip, sem höfðu langt úthald. Fyrstu árin frá ein- um til tveim mánuðum og síðar eftir að fiskur fer að tregast allt upp í þrjá til fjóra mánuði. Loft- ur var sérlega vel liðinn af þeim skipstjórum, sem með honum störfuðu og hefi ég þeirra orð fyrir því. Þetta voru kunnustu úthafsskipstjórar Breta og lang- ar mig til að nefna Leo Romain, Jimmy Zeeder, Charlie Johann- son, Hall Isaksen, Dick Dooks og Russel, sem allir voru til skiptis á Fairtry-skipunum. Loftur var afar greiðvikinn og hjálpaði mörgum og ég hefi fyrir satt, að það hafi stundum ekki orðið honum útlátalaust. Alltaf var hann boðinn og búinn til að liðsinna öðrum skipum, hvort heldur var með lyf eða varahluti, og var hann aldrei glaðari en þeg- ar hann gat bætt úr þörfum ann- arra. Ég man til dæmis eftir að VÍKINGUR 144

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.