Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Page 26
Kjarnorkukona, sem vissulega
hefur ekki grafið sitt pund á hin-
um erfiðu tímum fyrir og eftir
síðustu aldamót.
Þessi hjón, foreldrar Bjöms,
voru að því er ég held alltaf
kennd við Ánanaust, hvort sem
þau áttu heima austan eða vest-
an við „lækinn", sem þá skildi
vestur- og austurbæ að.
Bjöm hóf jámsmíðanám ó-
venjulega ungur hjá hinum al-
þekkta járnsmíðameistara, Þor-
steini Jónssyni á Vesturgötu, sem
á þeim tímum þótti harður en
góður skóli, þar sem fór saman
alhliða líkamsþjálfun ásamt
kennslu í „faginu" og viður-
kenndri skyldurækni við „járn-
smíðafagið". Þar var gamli „eld-
smiðurinn" að verki, þar var
harður skóli og góður skóli og
þeir sem stóðust það próf þóttu
menn að meiru.
Bjöm var herbergisfélagi minn
og þar með nánasti félagi árið
1923—24, þegar við báðir vorum
í yngri deild Vélstjóraskóla ís-
lands.
Björn var þá eins og alltaf
fjórum árum yngri en ég — og
hefði því átt að hafa síðasta orð-
ið — var eftirminnileg persóna,
sem ekki gleymist. Hann var
meðalmaður á vöxt, ýturvaxinn,
góður meðalmaður í skóla og
ákaflega vel liðinn jafnt af kenn-
urum sem skólabræðrum.
Hann var eftirsóttur í jafn-
aldrahópi og átti marga vini, leik-
bræður og félaga í hópi vestur-
bæinga sem þá ekki síður en nú
áttu sinn þátt í félagslífi bæjar-
ins. 1 þessum hópi var hann eftir-
sóttur vegna frábærrar kímni og
hnyttinna uppátækja og svaf þá
oft styttri tíma en æskilegt
þótti samkvæm almennum regl-
um.
Hann hafði engan áhuga á því
að verða „dúx“ en hann mætti
vel og reglulega í tímum —
stundum lítið lesinn og of illa sof-
inn en stóð sig alltaf með prýði.
Jafnvel hinir þröngsýnustu og
ströngustu kennarar, sem að vísu
voru allir ágætismenn, voru
ánægðir með frammistöðu hans
eftir tvísýnar yfirheyrslur, og
hann virtist alltaf hafa lánið með
sér og standa með pálmann í
höndunum.
Björn var yngstur af okkur
ellefu skólabræðrum. Hann var
gleðimaður, sem naut þess að
skemmta sér í vinahópi, en hann
var þá líka alvörugefinn og virti
án þess að fyrirverða sig sína
barnatrú og ýmsar venjur hon-
um kenndar af ástríkum foreldr-
um. Þessar venjur voru sameigin-
legar vöggugjafir allflestra sam-
tímamanna hans en lítt viðhafð-
ar í daglegri breytni eftir að
handleiðslu foreldra var lokið.
Þessi stefnufesta Björns var eitt
af því fyrsta sem ég tók eftir þeg-
ar við urðum herbergisfélagar
og ég virti það og mat og vona að
hann hafi stundað það alla tíð.
Björn sigldi árum saman sem
vélstjóri hjá Eimskipafélagi Is-
lands, vann sig þar upp frá
lægsta þrepi til efstu tröppu.
Naut góðrar leiðsagnar margra
góðra manna sem hann kunni vel
að meta og tileinka sér það já-
kvæða sem út frá þeirri reynslu
hafðist.
Hann var í sínu vélstjórastarfi
vel liðinn af yfir- og undirmönn-
um svo sem í einkalífi sínu. Vök-
ull og lánsamur og lauk löngu vél-
stjórastarfi með ágætum.
Árið 1931 kvæntist Björn Ingi-
björgu Stephensen, dóttur Ólafs
Stephensens prests í Mýrdal,
Lágafelli í Mosfellssveit og víðar,
alþekkts kenni- og athafnamanns
og konu hans Steinunnar Eiríks-
dóttur sem mun hafa átt sín síð-
ustu ár í skjóli Bjöms og Ingi-
bjargar.
Þau hjónin, Bjöm og Ingi-
björg, eignuðust þrjá syni sem
eru allir nýtir og vel metnir borg-
arar í dagsins önn en þeir eru:
Ólafur, verksmiðjustjóri í Stál-
smiðjunni hf., Jón Hilmar, vél-
stjóri og hitaveitustjóri á Sel-
tjarnarnesi, og Björn Ingi, kjöt-
iðnaðar- og kaupmaður.
Björn Jónsson, minn gamli vin-
ur og félagi er allur, horfinn í
skaut feðra sinna bak við „tjald-
ið“. • En eftir eru minningar,
margar og góðar, hugþekkar og
margbreytilegar.
Þakka góða viðkynningu og
skemmtilega samleið. Kær kveðja
til Ingibjargar, sona, tengda- og
barnabarna.
Guðfinnur Þorbjörnsson.
HAPPDRÆTTI DAS
60% af ágóða varið til bygg-
ingar Dvalarheimilisins.
SKRIFSTOFA AÐALSTRÆTI 6
Aðalumboð Vesturveri.
Símar: 17117 og 17757
önnumst viðgerðir á rafvélum
og raflögnum fyrir skip og í
landi.
Góðir fagmenn. Vönduð vinna.
Rafvélaverkstæðið
VOLTI
Norðúrstíg 3, símar 16458 og 16398
SÖLUSAMBAND
ÍSLENZKRA
FISKFRAMLEIÐENDA
stofnað í júlímánuði 1932,
með samtökum fiskframleið-
enda, til þess að ná eðlilegu
verði á útfluttan fisk
landsmanna.
Skrifstofa Sölusambandsins er
í Aðalstræti 6.
Símnefni: FISKSÖLUNEFNDIN
Sími: 11480 (7 línur).
146
VÍKINGUR