Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Qupperneq 31
BAKKUS
OG
FARSTJÓRINN
Frásögn þessi fjallar um at-
burð á miðunum við Vestfirði.
Greinarhöfundur var starfandi
á kaupskipi. Hér er því ekki
skáldsaga á ferðinni, þó að nöfn-
um og tímasetningu sé sleppt.
Einn maður á 12 tonna báti.
Fjarskiptastöðin á ísafirði kallar
út hjálparbeiðni.
Báturinn er frá sjávarkauptúni
þar vestra. öll skip eru beðin um
að skyggnast eftir bátnum og
tilkynna Slysavamafélagi fslands
árangurinn. Skýrt var frá áætl-
aðri staðarákvörðun bátsins.
Þrátt fyrir éljagang og erfið
skilyrði til fjarskipta tókst okk-
ur að koma okkar staðarákvörð-
un á framfæri. Frost var að
norðaustan, 8—10 vindstig. Fljót-
lega sáum við bátsljós fyrir
vestan okkur. Þá var siglt í átt-
ina að því. Að einni klukkustund
liðinni komum við að báti og var
það sá 'eftirlýsti.
Haft var samband við Slysa-
varnafélag fslands. Okkur var
tjáð að maðurinn á bátnum væri
illa fyrirkallaður. Skilaboðum
ættum við að koma til ölvaða far-
stjórans, siglingagleðinni til
hnekkis.
Hann ætti strax að snúa við
til heimahafnar, það væru fyrir-
mæli frá S.V.F.Í. Lauk þar sam-
talinu. Árangurslaust var reynt
að ná sambandi við bátinn á
neyðartíðninni. Báturinn var
lýstur upp með ljóskastara. Skila-
boðin voru send um talmagnara.
Hringsigling bátsins hélt stans-
laust áfram. Veiðarfærin slógu
óreglulegt hljómfall á þilfarinu,
en á meðan lét stjórnandinn sér
fátt um finnast og hrópaði eitt-
VÍKINGUR
hvað óskiljanlegt í reiðitóni. Að
svo búnu var dyrunum á stýris-
húsinu skellt að stöfum.
Hringavitleysan rann áfram
sitt skeið. Hinn góðglaði hafði
fyrirmælin að engu. Allt í einu
er báturinn á fullri ferð og siglir
þvert fyrir stefnið á okkur.
Árekstur virtist óumflýjanlegur,
en einhvern veginn slapp það.
Fljótlega kemur annar fiskibát-
ur til aðstoðar í „Bakkusarleik-
inn.“ Lauk þar okkar þátttöku.
Við fréttum það síðar að varð-
skip hefði komið. Fóru menn
þaðan um borð í bátinn og sigldu
honum til næstu hafnar. Ævin-
týramaðurinn var fluttur heim
til sín.
Starfsvettvangur sjófarenda
er margslunginn og fullyrða má
að S.V.F.Í. og Landhelgisgæslan
hafa í mörg horn að líta.
Einn í „Ieiknum.“
Nyit Vinyl
SJÓMENN
Þetta merki bregst ykkur aldrei
Veljið það.- Notið VINYL-vettl-
inga í ykkar erfiða starfi.
Starf ykkar krefst sterkustu og
endingarbeztu vettlinganna.
SJÓKLÆÐAGPRÐIN HF.
Skúlagötu 51 - Reykjavik
Símar: 12063 og 14085.
INGÓLFS APÓTEK
Selur
lyfjaskrín, fyrir farþegaskip,
vinnustaði, ferðabíla og
heimili.
INGÓLFS APÓTEK
Aðalstræti 4 (Fischersundi).
Sfamar: 11330 og 24418.
151