Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1975, Side 28
Frióþjófur Gunnlaugsson:
SkaUþegn
í irelferðarríkí
Það fer eigi ill’a um þig, frjálsborni þegn,
í framsæknu velferðarríki,
þó háþróuð stjórnun og hagvaxtar megn
hófsemd úr götunni víki.
liónnuðum fjölgar með háskólapróf,
hópsálin auðsveipa stœkkar.
Vinnan er einskonar óhagrænt þóf
sem auglýst hámenning smækkar.
Að róa á fiski er ráðleysis dund,
sem refsa ber strax, eftir þörfum,
og aldrei skóp Drottinn græna grund
sem grundvöll að ræktunar störfum.
Nei, þér ber að sitja á sólvermdri strönd,
á segulbönd kjóavæl festa
og sveima um ónytjuð sinulönd
í samstóði alþjóða gesta.
Ef hefirðu gáfur, þú gengur þá braut
sem gildandi tískan stefnir
og leysist frá ógöfgri erfiðis þraut,
en aurar með þér eru gefnir.
Þegar svo tölvan þig tekur á skrá
sem tækni- og allskonar fræðing,
sem hagsýslutœki þú hnepptur ert þá
í harðsnúinn stjórnunar lœðing.
En oft ertu heimskur, þrár og þver
og þumbast á aflóga tíma.
Þessvegna ennþá bát þinn ber
þar brotsjó þarf við að glíma.
Þú skilur það ekki að ei þurfti gát
né útsjón hvar beri að landi
og allar ef leggurðu árar í bát
að aðrir þig firra grandi.
Ef ertu svo heimskur að hrekjast í starf
með höndum, á sjó eða landi.
þá finnurðu vel hvað vinna þarf
svo velferðar skútan ei strandi
En erfiðis launin — þar eru þau mál
sem eru i Ríkinu bönnuð —
og það kemur upp i þér einstaklings sál,
sem ekki i töhm var h.önnuð.
Þú stritar svo öðlist í Ríkinu rétt
til rólegrar, göfgandi elli.
En háttvirtar leikbrúður lög hafa sett
er l.ágt settum skattþegni belli:
Ef aurað þú hefur til hagræðis þér,
þú hefir ei fylgt réttum línum.
Og handhendi kúgarans kemur og fer
með kúfinn af afrakstri þínum.
Þér er að síðustu hent út í horn
með helsi. að fótum þé.r snúin
I Ríkisins líkama þarfleysis þorn,
þystill, sem eyðing er búin.
En áður en slokknar þit.t útfarar bál
úr öskunni þörf er að raka
því enn vantar kúfinn á kúgarans sál.
Hann krefur þig dauðan saka.
414
VÍKINGUR