Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Page 5
Uppáhaldsfengur
tollþjónanna
Botany Bay lá á fljótinu og New
York virtist svo óendanlega langt í
burtu. Mest bar á þrem háhýsum,
þau minntu í myrkrinu á nornirn-
ar í Makbeð Shakespears og
þrumurnar undirstrikuðu hina
ógnvekjandi mynd.
Við höfðum legið óvenju lengi.
Bandaríkin voru gott land og íbú-
arnir kusu sér að sitja einir að
gæðum þess; vildu a.m.k. ekki
deila kostum þess með öðrum, —
nema að vel yfirveguðu ráði.
Innflytjendur áttu að vera lögleg-
ir, og þvi tók þetta svona langan
tíma.
— Þetta er alltaf svona, þegar
komið er frá Ítalíu, sagði skip-
stjórinn og strauk ennið. — Þeir
vilja ekki ítali.
Já og við vorum með farþega,
tæknimenn frá Pirelli og nú voru
þeir að þjarma að Marchulii yfir-
verkfræðingi hjá Pirelli, sem þrátt
fyrir góðan haus, gat ómögulega
skilið að nokkrar tunnur af rauð-
víni skiptu máli.
— Þetta er ekki áfengi, þetta er
vin, ræktað í hlíðum Aversa dals-
ins. Sérstakt vín, aðeins fyrir mig.
Það er ekki áfengi. En tollurinn
VlKINGUR
setti honum tvo kosti, hella víninu
í svart fljótið, eða setja það undir
innsigli og hann varð að láta sig,
þrátt fyrir annars ágætar rök-
semdir.
— Þeir eru ekkert betri en páf-
inn og kirkjan, sagði hann mæðu-
lega.
— Leitið á mér, kæra fröken.
— Enginn rök bíta á þá.
Marchulii hélt áfram að útskýra
sín sjónarmið fyrir öllum sem
heyra vildu og að lokum fengum
við að halda áfram og leggjast við
bryggju á Staten Island.
Þetta litla atvik er mér ljóst í
minni og rifjar upp löng og
merkileg kynni af tollvörðum víða
um heim.
Tollverðir eru ágætir, en þeir sjá
rautt, ef ákveðnar vörur eru í far-
angri sjómanna, eða ferðalanga.
íslenskir tollverðir eru mest á
móti áfengi, sígarettum og tóbaki
og ef þau mál eru nokkurnveginn í
lagi hjá fólki, fær það að vera í
friði.
Flest ríki setja einfaldar reglur
um tollfrjálsan innflutning ferða-
manna og sjómanna og er það
auðveldasti hlutur í heimi að
fylgja þeim reglum, en samt getur
mönnum orðið á alvarleg skyssa,
sem kostað getur mikil vandræði.
Það leyfum við okkur að kalla
hér Uppáhaldsfeng tollvarðarins.
Hann sér rautt, ef hann finnur það
í fórum þínum.
Áfengi, vasahnífar
og leikföng
Ef þú kemur til Bandaríkjanna,
annaðhvort á skipi eða með flug-
vél, þá skaltu ekki hafa meðferðis
rauðvín á tunnum. Jafnvel ekki
þótt það sé ræktað í hlíðum
Aversa.
Það vissum við fyrir.
Þó ertu ekki í neinni sérstakri
hættu, nema ef þú skyldir vera
með konfektkassa með „vínflösk-
293