Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Síða 8
*
„Nei, ég hef aldrei sagt að mað-
urinn hafi verið undir áhrifum við
akstur. En skrýtið fannst mér þeg-
ar hann stansaði á móts við Þjóð-
leikhúsið, glápti á rauða ljósið, sem
merkir Uppselt og beið og beið eftir
að það skipti yfir í grænt.“
*
*
„Konan mín,“ sagði Lárus
gamli, „skilur hvorki upp né niður
í þessum sameiginlega markaði.
Hún hefur hugsað sér að versla á-
fram við Silla og Valda og hann
Þorbjörn í Borg!“
*
„Nei, hér megið þér alls ekki
liggja í sólbaði,“ sagði hótelstjór-
inn æstur við stúlku sem lá nakin
uppi á flötu hótelþakinu.
„En hér er engin sála,“ svaraði
stúlkan.
„Reyndar ekki, en það vill svo
til, að þér liggið á glerþakinu yfir
borðsal hótelsins — og fólkið fæst
ekki til að ljúka við morgunverð-
inn.
*
Til Jyrirmyndar
Nokkrir afrískir ættflokkar hafa
strangar reglur fyrir ræðutíma.
Þar tala yfirleitt ekki aðrir en
ættarhöfðingjarnir og fá ekki
lengri ræðutíma, en þeir geta
staðið á öðrum fæti á bersvæði.
*
A matsölustað við eina af bestu
veiðiánum í Noregi stóð eitt sinn
skilti með eftirfarandi áletrun:
„Laxveiðimenn og aðrir stór-
lygarar eru ávallt velkomnir hing-
að“.
*
— Skipstjóri! Það er skip að
sökkva nokkrar mílur frá okkur!
— Haltu kj . . . . og segðu þeim V
að bíða, ég er að lesa Frívaktina! t
296
VIKINGUR