Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Side 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Side 10
Næsta morgun byrjuðum við að draga línuna og drógum austur með landinu, einsog lína lá. Þetta var erfitt og hann var stífur. Það var flatskellu vindur, en lítill sjór. Ég man að það var hart að standa við gogginn, einsog þá var siður. Stýrimaður stóð með gogg- inn og goggaði hvern einasta fisk sem uþp úr sjónum kom. Þetta var hans aðalstarf, þegar línan var dregin. Ég átti þarna fremur illa vist, en grunaði ekki þá að ég átti eftir að komast í hann krappari og það fyrr en varði. Þegar við vorum að enda við að draga línuna um kvöldið höfðum við dregið okkur dálítið austur með berginu. Vorum við komnir austur undir Herdísarvík. Þá var komið brjálað norðanveður og togararnir voru komnir uppundir og voru flestir lagstir við akkeri, skammt frá landi. Þeir höfðu verið á Bankan- um, sem er þarna utar. Upp við landið var skjól, en ekki veiðiveður úti. Síðustu tímana, sem við vorum að draga línuna, hafði verið beitt úr haug, sem svo var nefnt. í stað þess að gera að aflanum, þá byrj- uðu menn að beita línuna sem inn kom, en báturinn var á útilegu. Það var síðdegis, sem Björn kallaði á mig og spurði hvort ég treysti mér til þess að leggja (lín- una). Ástæðan var sú, að við þessar aðstæður hafði það oft skeð að fiskur hafði hlaupið upp á vík- ina. Taldi Björn að þarna væri því talsverð veiðivon. Björn fór nú að segja mér ýmsar sögur af þessu, en hafði langa og mikla reynslu sem formaður og vissi alla hluti, sem veiðum og vetrarvertíðum kom við. Sagðist hann nú vilja leggja nokkur bjóð á víkina. Ég taldi það vera, að unnt væri með aðgæslu að leggja línuna, þrátt fyrir vondar aðstæður og við byrjuðum að undirbúa okkur og héldum við svo grunnt upp á vík- ina, upp á átta faðma dýpi ef ég man rétt og þar fórum við að leggja línuna. Línan lögð innanum togarana Við lögðum línuna nú inn og út með víkinni og innanum togar- ana, þvers og kruss, eftir því sem aðstæður leyfðu. Ég frétti síðar þegar ég kom í land, eftir mönnum, sem sáu til okkar, að þeir hafi haldið að þarna færu nú bandvitlausir menn, að leggja línu upp í harða landi innanum togaraflotann. Þetta var ekkert smávegis veð- ur. Sjóinn skóf í kófinu, en hann náði auðvitað ekki upp sjó, því vindurinn stóð af landi. Allt var á kafi í sjó, en báturinn, sem var 90 tonn var orðinn nokkuð þungur. Við lögðum þarna alla línuna, sem beitt var. Þegar því var lokið héldum við inn á Herdísarvík og lögðumst þar við akkeri á sex faðma dýpi. Við lágum grynnst, utar lá tog- araflotinn og til að sjá var hann æði nornalegur í kófinu. Við gengum nú frá öllu ofan- þilja og síðan lögðu menn sig til svefns, enda orðnir hvíldarþurfi eftir erfiðan dag. Um fimmleytið næsta morgun var ræst út, um borð í Pétursey. Þá var hann farinn að ganga niður með veðrið, og togararnir voru að byrja að létta akkerum. Hann byrjaði nú að lygna og brátt var komið besta veður. Björn hafði reyndar spáð því, að hann myndi ganga í SA átt þegar liði á daginn, sem síðan reyndist rétt vera. Við fórum nú að tygja okkur af stað og sáum þá að línan hafði komið upp á akkerinu hjá einum togaranum og menn voru að virða hana fyrir sér, því hún var krök af fiski. Mér leist nú ekki á blikuna. Svo var nú byrjað að draga og til þess að gera langa sögu stutta, þá var þetta einn eftirminnilegasti dagur sem ég hafði lifað á sjó, sem framundan var. Það var byrjað að draga skammt frá þar sem við lágum og dýpst fór línan á 20—30 faðma dýpi og það var fiskur á hverjum krók. Þessi líka ríga þorskur. Björn var vanur að telja, það sem fékkst, og reyndust flest vera 90 fiskar á 100 öngla lóð. Þá var nú eins gott að vera iðinn við gogginn og þetta var raunar ofviða einum manni, því inn á skipið komu 70 lestir af þorski, bara í þessari litlu lögn. Að draga þetta á svona grunnu vatni er í rauninni ólýsanlegt. Fiskurinn var yfirleitt lifandi og braust um þegar goggurinn var settur í hann svona bráðlifandi. Þegar steinar komu upp, þá flutu bara upp heilar línur seilað- ar af fiski. Við kepptumst við að draga. í fyrstu hafði Björn látið fara að beita í haug, en nú urðu allir auð- vitað að fara í aðgerð. Það var hvítalogn, þegar við byrjuðum að draga um morgun- inn, en um 10 leytið um morgun- inn byrjaði hann að kula af austri. Við héldum áfram að draga og nú byrjaði hann að vinda. Þegar við vorum búnir að draga klukkan fjögur um daginn var kominn austan stormur, með byl. Þeir lögðu því ekki í Húllið (fyrir Reykjanes) og var nú slóvað þarna grunnt með landinu og ekkert sást fyrir byl. Við urðum að hrúga miklu af fiskinum ofan í lest, óaðgerðum einsog hann kom fyrir, því eftir að hann var skollinn á, var ekki unnt að vinna að fiskaðgerð á þilfarinu, sem von var. Heimleiðis Það olli okkur nokkrum von- brigðum að komast ekki í landvar VÍKINGUR 298

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.