Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Side 23
íranska skólaskipið
skólaskip
Nýlega gerðu skipasmíðastöðin
Helsingör Værft smíðasamning
við varnarmálaráðuneyti fraks um
smíði á 12.500 tonna skólaskipi,
sem í senn verður notað til þess að
þjálfa skipstjórnarmenn og flytja
vörur.
Lestar skipsins eru 500.000
kubikfet.
Þarna er farin sú leið að láta
nemendur um borð í skip, sem
sinnir þó almennum verkefnum,
eða vöruflutningum og má nærri
geta að þaö er hentugt fyrir slíka
þjálfun.
Skipið er einnar skrúfu mótor-
skip. Ganghraöi 17.5 mílur.
Á skipinu er gert ráð fyrir 63
manna áhöfn, 30 kennurum og um
200 nemendum.
Auk þess að smíða skipið, tóku
Danirnir að sér að semja þjálfun-.
aráætlun og námsskrá og munu
veita tækniaðstoð á því sviði.
Skipið verður afhent næsta vor
(1978).
Skipið er svipaðrar gerðar og
skip, sem nýverið var smíðað í
Danmörku fyrir Kúbu, en það ber
nafnið JOSE MERTI og vakti
nokkra athygli, því meðan hið
kubanska skip var í smíðum, fékk
danskt kvikmyndafélag leyfi til
þess að taka kvikmyndir í stööinni,
en myndin gerist í „Rússlandi".
Þurftu kvikmyndagerðarmennirn-
ir m.a. að mynda er skipi er hleypt
af stokkunum í „rússneskri" skipa-
smíðastöð.
Þá vakti það líka athygli í Dan-
mörku að kúbanska skólaskipið
var búið mjög fullkomnum hljóm-
tækjum til afnota fyrir áhöfnina,
en það er óvenjulegt að skipa-
smíðastöðvar séu látnar leggja til
slík tæki í ný skip.
búsorgum síðan af íbúum strand-
arinnar, því skipstöpum fækkaði
— og þá um leið skipbrotsmönn-
um.
Nýi vitinn verður á Hátteberget
og telja sjómenn mikinn feng að
þessum nýja og öfluga vita.
Turninn á Pater Noster er 32
metra hár og er gerður úr járnbit-
um.
Það er athyglisvert, að það voru
tvær konur, þingmenn á sænska
þinginu, sem fluttu frumvarpið
um friðlýsingu Pater Noster vit-
ans.
Á íslandi eru nokkrir aflagðir
vitar, t.d. á Reykjanesi og á Garð-
skaga. Ef til vill hefðu þeir varð-
veislugildi.
Vitaturninn er geröur úr stáigrind, sem er í senn fögur og traust. Turninn er 32
metra hár.
VfKINGUR
311