Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Side 27
um
perluna
I aldaraðir hafa sögusagnir um
perluna verið eins margar og
ostrurnar í sjónum, um uppruna
þeirra og eiginleika. Að vísu hefur
lengi verið vitað að perlurnar
komu úr ostrum og þá aðeins í
einstökum tilfellum, en það var
líka allt og sumt. Á hvern hátt þær
urðu til og úr hvaða efni, var ekki
vitað með neinni vissu, þar til
ungur Japani, Kokichi Mikimoto,
sonur bláfátæks og ómenntaðs
umferðarbrauðsala, fékk þá hug-
mynd að reyna að rækta þessa
dýrmætu, skrautlegu „steina“ og
framleiða í svo miklu magni að
aðgengilegt yrði, verðsins vegna,
fyrir hverja konu að skreyta sig
með. Þessi ungi japani áleit að
hægt væri að rækta perlur, alveg
eins og hrísgrjón á ökrum og ann-
an jarðargróður. í fornöld voru
perlur kallaðar „Tár guðanna“ og
verð þeirra svo hátt að aðeisn rík-
ustu menn gátu keypt. Perlufestar
úr gallalausum „ekta perlum“
urðu vart metnar til fjár. Frá
ómuna tíð hafa menn stundað
ostruveiðar í leit að perlum og
milljónir ostruskeljar verið opn-
aðar í von um árangur, en aðeins í
örfáum tilfellum hefur heppnin
verið með.
Þetta tókst Mikimoto og nú
hefur þetta fyrirtæki blómgast og
dafnað svo, að hinar upprunalegu
ræktunarstöðvar hafa birgða-
skemmur í svo að segja hverri
einustu stórborg í heiminum og
ekki aðeins það, heldur einnig gert
Perlueyjuna Mie Prefecture í Jap-
an að einu af stærstu útflutnings-
fyrirtækjum landsins og þangað
koma um 6 milljónir ferðamenn
árlega.
Engin ræktunarstöð í Japan, en
þær eru nú orðnar nokkuð marg-
ar, þótt smærri séu í sniðum, jafn-
ast á við Mie við Iseflóa. Þar er
náttúrufegurð mikil og margir
sögulega athyglisverðir staðii. Allt
þetta, auk hinnar frægu ræktun-
arstöðvar, hafa gert staðinn
heimsfrægan og eftirsóttan af
skemmtiferðafólki, enda hótel og
öll þjónusta í sér flokki.
Á Perlueyjunni eru sýningar-
salir þar sem allþ viðkomandi
ostrum og perlum er sýnt. Þróun-
arferillinn frá upphafi til enda, í
þessari atvinnugrein. Ostrurnar,
sem framleiða eiga perlur, eru
geymdar, eða aldar upp, í víð-
áttumiklum afgirtum svæðum í
flóanum, en þarna, skammt und-
an ströndinni eru, eftir því, sem
best er vitað, 158 milljónir ostra,
sem framleiða hinar undurfögru
perlur, í öllum regnbogans litum.
Hvernig ostrunum er safnað, vek-
ur sérstaka athygli gestsins, en það
verk er unnið af séræfðum stúlk-
um, sem geta verið í kafi um eina
mínútu í einu.
I hinni helgu bók Hindúa, Rig
Veta, sem skrifuð var þúsundum
ára f. Kr. er getið um Krishna“ —-
„Tár guðanna“ og telja fræði-
menn að um perlur hafi verið að
ræða.
í aldaraðir hafa menn kafað