Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Page 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Page 28
„Perlukóngurinn" Kokichi Mikimoto. „Ég ætla að skreyta háls allra kvenna í heiminum, með perlufestum." niður í sjóinn og leitað ostra, í þeirri von að finna þessa dýrmætu skrautmuni og oft lagt lífið að veði. Vettvangur þessarar iðju var lengstum eingöngu Miðjarðar- hafið og Indlandsflói. Einn hinna áhugamestu þessara ævintýra- manna, var Mikimoto, sonur brauðsalans. Hann var elstur tólf systkina, alinn upp við hina mestu fátækt og umkomuleysi. Hann hreifst af hinu áhættusama starfi perlukafaranna í Mið-Asíu og Indlandshafi, sem létu ekki ógnir undirdjúpanna aftra sér í leit að hinum eftirsóttu perluostrum og væntanlegum auðæfum við sölu á perlum, því að eftirspurnin var mikil og markaðurinn því óþrjót- andi. Kokichi Mikimoto var fæddur í litlum fiskimannabæ árið 1858. Þegar faðir hans missti heilsuna, var hann ungur að árum, en tók þá við brauðsölunni til þess að sjá hinu barnmarga heimili farborða. Hann var kjarkmikill unglingur. með ríkt hugmyndaflug og hið erfiða brauðstrit og baráttan við hungrið, hafði eflt hann að þolin- mæði og þrautseigju. Með ein- hverjum hætti komst hann yfir smáverslun, sem gekk vel og síðar hóf hann kornsölu, sem einnig dafnaði. Á þeim tímum tíðkaðist ekki í Japan, að fátæk börn leit- uðu sér menntunar í skólum, en Mikimoto lét allar gamlar hefðir lönd og leið og stofnaði ásamt nokkrum unglingum til kvöld- námskeiða, auk þess sem hann leitaði fræðslu, þar sem hana var að finna. Síðar varð hann hluthafi í fyrirtæki, sem seldi sjávarafurðir. Þetta fyrirtæki stundaði einnig nokkur viðskipti við sölu á „náttúru“perlum, þ.e.a.s. perlum, sem urðu til í ostrum af tilviljun einni og þannig komst hann á sporið, sem átti eftir að gjörbreyta lífi hans og kjörum. Áður fyrr voru það, eins og áður var sagt, aðeins örfáar, af þeim aragrúa af ostrum í sjónum, sem perlur höfðu myndast í og Miki- moto fékk þær upplýsingar hjá japanska prófessornum Mizur- kuri, að orsökin til perlumyndun- ar í skeljunum, stafaði af því að smáaðskotahlutur, eins og sand- korn, sem komist hafði í skelina, væri frumorsök perlumyndunar, þannig að líffæri ostrunnar gæfi frá sér efni, sem umlyki aðskota- hlutinn, smátt og smátt, lag eftir lag, þar til þetta væri orðið að perlu, en slíkt tæki langan tíma, jafnvel mörg ár. Þá kom það fyrir og ekki ósjaldan að skelfiskinum tókst ekki að einangra aðskota- hlutinn og varð það honum að bana. Svo var það, að ostran var eftirsótt æti stærri fiska og skipti þá að sjálfsögðu engu máli hvort skelin hefði að geyma fallega perlu eða ekki. Mikimoto var sannfærður um að skipuleg perlurækt í ostrum væri möguleg og þegar hann var um tvítugt tók hann, ásamt konu Gjöf Mikimotos til framkvæmdanefndar hinnar þjóðlegu blómahátíðar í Japan. Kóróna úr gulli og perlum til krýningar hinnar kjörnu blómadrottningar. 316 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.