Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Síða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Síða 29
sinni, að gera slíkar tilraunir fyrir alvöru, en lengi vel mistókust þessar tilraunir. Ostrurnar dráp- ust, mynduðu ekkert lag utan um sandkornið og margt fleira kom til sögunnar, eins og að aðskota- hlutnum var ekki komið fyrir á réttum stað í skelinni, enda um algera nýjung að ræða og allt ó- lært í þessum efnum. En hjónin gáfust ekki upp og héldu tilraun- um sínum áfram, árum saman þrátt fyrir stöðug vonbrigði og háðsyrði almennings, sem álitu þau vitfirringa. Þá tók einnig að þrengjast um fjárhaginn, því að allt þetta umstang kostaði talsvert fé. En loks tók að birta í álinn. Það var hinn 1E júní 1893, þegar hjónin voru, að venju að opna ostruskeljar, sem þau höfðu ræktað, að í einni skelinni birtist glansandi og falleg perla, að vísu ekki fullkomlega hnöttótt og þannig ekki alveg eins góður árangur og vonir stóðu til, en samt sem áður sönnun þess að hægt var að framleiða perlur á þennan hátt og árangurinn af margra ára til- raunum, þrautseigju og vonbrigð- um að koma í ljós. Gleðin var mikil hjá hjónunum og háðsyrði almennings sljákkuðu. Þau ákváðu nú að gera þetta að ævi- starfi og fluttu bækistöðvar sínar til eyjunnar Tatokajima, þar sem aðstæður voru betri og komu sér þar upp nýrri tilraunastöð, með þeim útbúnaði, sem reynslan hafði kennt þeim að var nauðsyn- legur, en í dag myndi þykja mjög frumstæður. Og tilraunirnar héldu áfram af mikilli elju og dugnaði. Oft voru vonbrigðin sár, en gleðin mikil þegar vel tókst til. Enn liðu fjögur ár þar til þeim tókst að framleiða perlur, sem í engu voru frábrugðnar þeim, sem af tilviljun fundust í ostrum, hvorki að lögun, styrkleika eða áferðarfegurð, en það tók langan tíma að sanna það fyrir heimin- um, að þessar perlur væru eins VÍKINGUR Perlurnar flokkaðar, eftir stærð og gæðum. mikils virði og hinar. Þetta tókst þó að lokum og fyrirtækið óx og dafnaði, jafnt og þétt, þannig að þegar Mikimoto lést hinn 21. september 1954, 96 ára gamall í „Perluhöll“ sinni á Tatoku-eyju, var það orðið að traustu stórfyrir- tæki. Ólíkt hinum mörgu, eða flest- um iðnfyrirtækjum í Japan og víða um heim, naut Mikimoto og kona hans einskis styrks eða ann- arrar fyrirgreiðslu við hinar ára- tuga löngu tilraunir, hvorki frá opinberum aðilum eða einstakl- ingum. Þetta þótti því hið mesta þrekvirki, sem vakti verðskuldaða athygli og aðdáun víðsvegar um heim allan, sem kom ekki síst í ljós af tugþúsundum samúðarskeyta frá öllum heimshornum, sem fyrirtækinu barst við fráfall hans. Að sjálfsögðu eru fleiri perlu- ræktarstöðvar starfræktar í Japan, 317

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.