Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 33
Aðalfundur Slysa- varnafélags fslands Hatdinn í Nesjaskóla í Hornafirði 25. og 26. júní 1977 l ræðu sinni við setningu fund- arins komst forseti SVFÍ Gunnar Friðriksson, m.a. þannig að orði: „Slysavarnafélag íslands hefur nú, eins og ykkur er öllum kunn- ugt, starfað í nær hálfa öld. Margur mætti ætla, að nú væri tími athafna að baki, það væri búið að framkvæma svo mikið að við gætum tekið okkur hvíld, en svo er ekki. Við stöndum miklu frekar á tímamótum nýrra fram- kvæmda. Ég sagði einhverju sinni að það væri einkennandi fyrir slysavarnastarfið að eftir því sem eldri verkefni leystust þá kæmu upp ný verkefni, sem krefðust úr- lausnar. Þetta er jafnmikil stað- reynd í dag, eins og það var fyrir nokkrum árum. Afkomendur dreifbýlisfólksins, sem stofnaði S.V.F.Í. fyrir nær 50 árum, hefur nú að mestu fært sig saman og myndað fjölbýliskjarna. Það hefur vissulega haft mikið að VÍKINGUR gera við að byggja sér ný heim- kynni, en það hefur ekki gleymt hugsjónum mæðra sinna og feðra. Þær hugsjónir, sem urðu kveikjan að stofnun S.V.F.f. Lifa enn með þessu fólki í nýju umhverfi og við breyttar aðstæður. Nærtækast er að taka dæmi héðan. Hér hafa safnast saman á örfáum áratugum dugmikið fólk, sem hefur haft meira en nóg að gera við að koma sér fyrir, en það hefur í önn dags- ins ekki gleymt að gæta bróður síns. Á meðan heimilisfeðurnir hafa sótt sjóinn af kappi og tekið brotalaust án undantekninga þátt í því nýja öryggiskerfi, sem er Til- kynningaskyldan, hafa konurnar tekið sér múrskeið í hönd og í önn dagsins byggt björgunarstöð. Sjálfar hlaðið veggina og síðan með bændum sínum og öðrum góðum, hjálplegum mönnum innréttað þetta hús, hús mannúð- Gunnar Friðriksson og Þórður Jóns- son, kempan frá Látrum takast í hend- ur þegar Þórður var kjörinn heiðursfé- lagi. Hann var í stjórn SVFÍ í 22 ár og form. Slysavarnadeildarinnar „Bræðrabandið" frá stofnun hennar. Bergur Arnbjörnsson frá Akranesi var í fjöldamörg ár forustumaður í slysa- vörnum á Akranesi og sat í stjórn SVFÍ, sem fulltrúi fyrir Sunnlendingafjórð- ung. Hann var einnig kjörinn heiðurs- félagi á aðalfundinum. Fundarmenn SVFÍ sitja hóf í boði Hafnarhrepps. arinnar, en þetta er aðeins fyrsti áfangi. Áður en björgunarstöðin er afhent hefur þessi dugmikli hópur kvenna og karla sent stjórn SVFÍ teikningar að viðbótar- byggingu við björgunarstöðina, sem ætlað er að hýsi öll þau nýju tæki, sem björgunarsveitin hefur eignast og aðkallandi er að séu geymd innanhúss svo þau séu alltaf tiltæk og í góðu standi þegar á þeim þarf að halda. 321

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.