Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Page 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Page 34
Ég hefi gert sérstaklega að um- ræðuefni hér dugnað og fram- kvæmdavilja fólksins hér, en þetta viðfangsefni blasir víðar við okk- ur. Nú þurfum við sameiginlega að leita nýrra ráða — til að hefta ekki þennan framkvæmdavilja. Við verðum að fá hina nýju byggðakjarna í lið með okkur. Hér er byggt fyrír framtíðina. Þessar byggingar verða félagsheimili þess æskufólks, sem temur sér umhyggju fyrir annarra hag og finnur lífsfyllingu í að verja frí- stundum sínum í að gera sig hæf- ari til að koma öðrum til hjálpar.“ Hér verða birtar nokkrar tillög- ur, sem samþykktar voru á fundi SVFÍ.: Um öryggisbúnað á skuttogurum: „Aðalfundur SVFÍ, haldinn í Hornafirði 25. og 26. júní 1977, beinir því eindregið til sjómanna og útgerðarmanna, að þeir sjái til þess að lögboðinn öryggisbúnaður þessara skipa sé ætíð til um borð í þeim, svo sem öryggisbelti með líflínu, létt björgunarvesti o.fl., sbr. reglugerð frá 10. júní 1975. Jafnframt að sjómenn noti þenn- an búnað jafnan við vinnu sína enda hefur reynslan sýnt ótvírætt að notkun hans getur bjargað mannslífum. Þá beinir fundurinn því til Sigl- ingamálastofnunar ríkisins, að skoðunarmönnum skipa verði ákveðið fyrirskipað að gefa ekki út haffærisskírteini nema hinn lögboðni öryggisbúnaður sé fyrir hendi.“ Lög um tilkynn- ingarskyldu: „Aðalfundur SVFÍ, lýsir ánægju sinni með lög þau um til- kynningarskyldu íslenskra skipa, sem Alþingi samþykkti í síðasta mánuði og forseti Islands hefur síðan staðfest. Með því hefur miklu baráttumáli SVFÍ verið náð. En fundurinn bendir jafn- framt á, að ekki megi dragast, að reglugerð verði sett samkvæmt ákvæðum laganna, svo að sem best takist til um framkvæmd þeirra.“ Um öryggisloka við neta- og línuspil: „Vegna tíðra og alvarlegra slysa við vindur á neta- og línu- veiðiskipum skorar aðalfundur SVFÍ, haldinn í Hornafirði 25. og 26. júní 1977, á samgönguráðu- neytið að setja reglur um að ör- yggislokar skuli vera við neta- og línuspil á öllum skipum, sem eru með slík spil og stærri eru en 15 rúmlestir brúttó.“ Um öryggismál rækjuveiðibáta: „Aðalfundur SVFÍ, skorar á viðkomandi yfirvöld, svo og sjó- menn og útgerðarmenn rækju- veiðibáta að taka öryggismál þessara báta til rækilegrar endur- skoðunar. Verði þar einkum hug- að að togbúnaði bátanna og stað- setningu hans. Einnig telur fund- urinn, að leyfi til rækjuveiða eigi að binda því skilyrði að tveir menn hið fæsta stundi veiðarnar á viðkomandi bát.“ Um radarspegla og lit smábáta: „Aðalfundur SVFÍ, beinir því til samgönguráðuneytisins að settar verði reglur um að radar- speglar skuli vera á öllum skoð- unarskyldum smábátum til að hindra ásiglingar og auðvelda leit að þeim. Fundurinn skorar á alla þá, er sækja sjó á smábátum að útbúa þá með slíkum radarspeglum, enda kosta þeir lítið fé. Æskilegt er að smábátar verði, a.m.k. að hluta málaðir í skærum og áberandi litum til að þeir sjáist sem lengst að.“ Tillaga um björgunarvesti: „Aðalfundur SVFÍ, mælist ein- dregið til þess við alla þá, sem sigla á smábátum á sjó og vötnum, að þeir noti björgunarvesti. Bend- ir fundurinn á, að unnt er að fá létt og handhæg vesti, sem eru mönn- um ekki til trafala. Einnig skorar fundurinn á sjómenn á hvers konar skipum og bátum að nota sem oftast slík vesti við vinnu sína.“ Tillaga um fjar- skiptabúnað smábáta: „Aðalfundur SVFÍ beinir því til stjórnar félagsins, að hún hlutist til um það við stjórnvöld, að fram fari endurskoðun á lögum og reglugerðum um fjarskiptabúnað báta undir 20 smálestum brúttó að stærð.“ „Aðalfundurinn beinir því til stjórnar félagsins, að hún hlutist til um það við stjórnvöld, að endurskoðuð verði og breytt ákvæðum í lögum um atvinnu- réttindi skipstjórnarmanna sbr. 4. grein þessara laga um rétt til skipstjórnar á bátum undir 30 brúttórúmlestir að stærð.“ „Aðalfundur SVFÍ 1977 beinir enn einu sinni þeim ákveðnu til- mælum til Vegagerðar ríkisins að nú þegar verði hafist handaum að ljúka lagningu Svalvogavegar. í þessu sambandi skírskotar fund- urinn til fyrri röksemda sinna fyrir tilmælum sínum um sama efni.“ 322 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.