Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Side 37
Casco var byggð í San Fran-
cisco árið 1885, fyrir sérvitran
milljónamæring í Kaliforníu, sem
ætlaði að nota hana til skemmti-
siglinga á suðurhöfum. Ekkert var
til sparað til þess að gera skipið
hið glæsilegasta. Efniviður tekk og
mahogni, handrið gljáfægður
kopar og salir klæddir silki. Snjó-
hvít segl prýddu hin háu siglutré
og skrokklagið hið rennilegasta,
enda kom það á daginn síðar,.að í
góðum byr, náðist 15 mílna hraði.
Fagurt fley, sem vakti aðdáun
manna, þegar því var siglt út um
Gullnahliðið, í San Francisco, í
sína fyrstu ferð.
Hinn 8. september 1919 strand-
aði hin hásiglda, 72 lesta skúta
Casco, við hina einangruðu strönd
við eyjuna King Island í Berings-
sundi, 40 mílur frá þorpinu Nome.
Hún hafði slegið öll hraðamet á
leiðinni frá San Francisco til
Nome, farið þessa vegalengd á 42
dögum í hörku lensi. Um borð var
28 manna áhöfn og skipstjóri var
C.L. Oliver. Ferðinni var heitið til
Kolyma fljóts í Síberíu, en sögur
gengu um að þar væri að finna
ógrynni auðæfa í gullsandi.
Skipverjum tókst að komast í
land á ströndinni og náðu með sér
nokkru af birgðum skipsins og
komu sér upp bækistöð. Nokkrum
dögum síðar höfðu þeir samband
við Eskimóa, sem áttu leið þarna
um og keyptu af þeim skinnbát.
Sex reyndustu sjómannanna reru
svo bátskel þessari aftur til Nome,
en eftirlitsskip stjórnarinnar var
fljótlega sent á strandstað til þess
að bjarga þeim, sem eftir urðu.
En eftir á strandstað lá hið
rómantíska, litla skip, sem brátt
varð að flaki einu, um það sáu ís-
hafsstormarnir og nýtnir Eskimó-
ar. Þannig endaði ferill þessa
skips, sem í 33 ár hafði siglt um
víðáttur hafsins, við eyðilega
strönd King Islands. Öll skip eiga
sína sögu, en saga þessa skips er
VlKINGUR
325