Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Blaðsíða 40
þrátt fyrir þetta sá skipstjórinn. sér
til mikillar undrunar, að varð-
skipið nálgaðist. Strandgæslan
hafði nefnilega útbúið skip sín
með hjálparvélum. Nú voru góð
ráð dýr.
Þegar varðskipið var komið að
hlið Casco og nokkrir yfirmenn
þess komnir um borð, spurði
skipstjórinn, með undrunar- og
sakleysissvip, hvert erindi þeirra
væri. Nákvæm leit var gerð í
skipinu. Leitað var hátt og lágt, en
ekkert fannst, hvorki Kínverjar né
ópíum. varðskipsmönnum til
mikilla vonbrigða, en þá grunaði
að hér hefði eitthvað viðbjóðslegt
átt sér stað. En hvað hafði eigin-
lega átt sér stað?
Höfundur þessarar greinar telur
sig hafa fundið svarið í óþverra-
legri vínkrá, niður við höfnina í
Victoriu, þar sem hann átti tal við
gamlan, rotnandi drykkjuræfil,
fyrrverandi skipverja á Casco,
sem þrátt fyrir hryllilegt ástand,
mundi vel eftir þessum atburði.
„Það var um líf þeirra eða
fangelsi fyrir okkur að ræða,“
sagði hinn gamli þrjótur, hörðum
og hásum rómi. „Þeir voru í lest-
inni,— þessi síkjaftandi hópur,—
en fargjaldið í okkar vösum. Á
meðan enn var langt á milli skip-
anna, tókum við einn í einu uppá
þilfar, rotuðum þá, bundum síðan
við þá kolamola og fleygðum
þeim fyrir borð, þótt það kostaði
allar kolabirgðir í eldhúsinu,“ en
það þótti honum minnisstæðast.
„Þegar okkur varð ljóst að varð-
skipið var vélknúið, höfðum við
snör handbrögð við þetta. Þeir
voru 31 að tölu og foringi þeirra
hét Li-un, en hver þeirra um sig 20
punda virði og svo allt ópíumið
maður! Hið besta í heimi, —
jafnvirði sömu þyngdar í gulli!“
Og gátan var að lokum leyst, um
hina horfnu Kínverja, fyrir mörg-
um árum, þegar vindinn lægði og
hraðsiglarinn Casco varð að láta í
minni pokann fyrir vélknúnu
varðskipi.
Eftir þessa naumlegu undan-
komu, seldi eigandinn skipið, en
kaupendur notuðu það til vöru-
flutninga milli Victoríu og Van-
couver. Flutningar voru litlir á
árunum rétt fyrir fyrri heimsstyrj-
öldina og svo kom að leggja varð
skipinu vegna verkefnaskorts. Því
VÍKINGUR
Drifkeðjur og
keðjuhjól
Flestar stœrðir ávallt
fyrirliggjandi.
Veröiö mjög
hagstætt.
LANDSSMIÐJAN
SÍMI 20680
328