Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Qupperneq 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Qupperneq 45
fellur. Hús og bátar þurfa fólk, annars er voðinn vís. Mannlaus bátur fúnar á nokkr- um vikum af söknuði og húsin byrja strax að síga, eða lyftast á grunninum af djúpri sorg, ef þau eru skilin eftir ein. Hann vissi ekki af hverju hann sagði þetta og gamli ítalinn horfði einkennilega á hann stutta stund. Gamla góða merkið flg^TRETORN Merki stígvélanna sem sjó- menn þekkja vegna gæð- anna. Fáanleg: Með eða án trésóla. Með eða án karfahlífar Stígvélin sem sérstaklega eru framleidd með þarfir sjómanna fyrir augum. EINKAUMBOÐ JÓN BERGSSON H/F LANGHOLTSVEGI 82 REYKJAVÍK SÍMI36579 — Já, þú verður að fara, sagði hann hugsandi. — Ég myndi líka fara, ef hún væri ekki komin í jörðina hér. — Ég treysti þeim ekki til þess að sjá gröfina í friði. Þeir væru vísir til þess að byggja hótel eða banka í kirkjugarðinum, en eng- inn væri til varnar. Það gerðu þeir í Preston. Drógu bara upp pappíra og grófu svo allt klabbið upp og byggðu sér hús og fólkið þóttist -heppið að finna legsteinana í ruðningunum eftir ýturnar. — Heldurðu það, sagði hann til þess að segja eitthvað. — Heldurðu það. ítalinn leit upp. — Já, menn hafa nú leikið annað eins og það hér í Ameríku að reka kirkjugarða á leigulandi. Þeir segja engum frá því — og hinir dauðu spyrja einskis og svo þegar tímar líða eru allir dauðir og þá er enginn til þess að borga leiguna og þá koma þeir með ýt- urnar og byggja banka á öllu klabbinu. — Ég, sagði hann hróðugur, — heimtaði að sjá afsalið áður en ég keypti grafirnar og við mér geta þeir ekki hróflað. — Betra að hafa sitt á hreinu, sagði hann hróðugur og leit í kringum sig, greinilega svolítið stoltur af útsjónarseminni. — Heima í gamla landinu fá hinir dauðu að vera í friði, nema þegar eldfjallið blandar sér í hlut- ina og þá grefur það lifandi og dauða, alveg einsog borgin er far- in að gera núna, sagði hann og varð dapur í augunum. — Líklega sé ég Napoli aldrei aftur og það er líklega best. Stundum finnst mér ég geta fund- ið hin smáriðnu form í steinlögð- um strætunum og í tröppunum með iljunum. Ég myndi rata þetta blindur, aðeins með því að lesa formin með iljunum og tánum, einsog þegar ég var barn. Hver arða er ennþá í þessum löppum, sagði hann, — en nú getur alveg eins verið að búið sé að rífa þetta allt. Þessi gamla borg hefur breyst, en hérna er hún óbreytt. í kollin- um á Alberto og hann benti á grátt höfuð sitt. — Allt óbreytt í kollin- um hér — og það er best að hafa það svoleiðis áfram. III Landið við James River var lágt. Það var vatnsósa og fnykur af fúnum jurtum og rotnandi laufi barst að vitum hans og blandaðist römmum reyknum af blautum brennandi viði frá eldavélunum negranna. Þeir mölluðu sér allan Skoðun og viðgerðir gúmmíbáta allt árið. Kókosdreglar og ódýr teppi fyrirliggjandi. GÚMMlBATAÞJÓNUSTAN Grandagarði 13 - Simi 14010 VlKINGUR 333

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.