Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1977, Síða 48
HORFNW FELAGAR
í
Ekki kann ég því vel að ágætur
vinur minn og félagi liggi óbættur
hjá garði, þessvegna vil ég minn-
ast hans með örfáum orðum.
Haukur Hólm Kristjánsson
fæddist á Bíldudal 1/11 1921.
Foreldrar hans voru þau Marta
Eiríksdóttir og Kristján Hólm
Ólafsson. Haukur ólst upp á
Bíldudal hjá ömmu sinni og afa,
þeim Jensínu Jónsdóttur og
Kristjáni Alberti Bjarnasyni til 13
ára aldurs, en fluttist þá til Hafn-
arfjarðar. Fór hann fyrst í Flens-
borgarskóla en síðar á loftskeyta-
skólann í Reykjavík, en átti heim-
ili í Hafnarfirði æ síðan.
1953 kvæntist Haukur þýskri
konu, Rósu M. Hinriksdóttur.
Börn þeirra eru Frímann Hólm f.
1954, tæknifræðinemi í Dan-
mörku, Kristján Hólm, f. 1955,
sjómaður, Kristín f. 1960, nemi í
Flensborgarskóla og Haukur
Hólm f. 1962, nemi.
Það er skemmst að segja, að
vegna sameiginlegra starfa kynnt-
umst við snemma, eða um árið
1941, en þá byrjaði hann að sigla
og sigldi það sem eftir var stríðs,
og þarf engum að segja hver
áreynsla það var að koma beint úr
skóla og steypa sér strax í þá bar-
áttu sem þá fór fram á höfunum.
Það þekktu þá þegar marghertir
sjómenn og vissu að talsvert þrek
þurfti til. Haukur brást heldur
ekki skyldu sinni, en hélt áfram
ótrauður og sigldi síðan stanslaust
áfram uns yfir lauk.
Hann var í sumarfríi sér til
hvíldar þegar dauðann bar
skyndilega að snemma í ágúst, þá
staddur í Júgóslavíu.
Haukur sigldi ævinlega hjá
Haukur
Hólm
Kristjánsson
loftskeytamaður
Minning
Haukur Hólm
sama félagi, Eimskipafélagi ís-
lands og var þar á mörgum skip-
um. Síðustu árin á M/s Bakka-
fossi. Fengst af fylgdi hann heið-
ursmanninum Jónasi Böðvarssyni
uns Jónas lét af skipstjóm sökum
aldurs. Það fór einlægt vel á með
þeim og heyrt hefi ég eftir Jónasi
að Haukur hafi verið sá besti loft-
skeytamaður sem hann hafi haft á
löngum skipstjóraferli. Þetta eru
mikil meðmæli. Sama mátti segja
um þær skipshafnir sem honum
voru samtíða. Var mér það afar
vel kunnugt þar sem ég leysti hann
af í fríum um margra ára bil. Enda
var maðurinn afar skyldurækinn
og prúður, gekk hægt um gleð-
innar dyr og auðvitað þeim mun
geðþekkari fyrir bragðið. Auk
þess var hann með allra færustu
mönnum í sínu fagi, góður í við-
gerðum tækja, fylgdist ákaflega
vel með öllu, sem fram fór á öld-
um ljósvakans, góður í morse og
sendingin það góð að minnti á
tónlist eins og hjá öllum sem ná
góðu valdi á morse-lykli.
Það er furðulegt að þetta stafróf
samsett úr einungis tveim merkj-
um punkti og striki, skuli geta
orðið það sérkennandi að hver
einstakur þekkist á sendingunni
líkt og maður þekkir venjulega
skrift manna á letri. Góð
morse-sending er í ætt við tónlist
og Haukur var einn þessara
manna sem náðu þessum ein-
kennilega fögru blæbrigðum, sem
hefðu snortið hvern góðan tón-
listarmann, sem á hefði hlýtt.
Haukur vann undanfarin sum-
ur í um það bil tvo mánuði á
Reykjavík-Radio hvert sumar
meðan sumarfrí þar stóðu sem
hæst og var hvers manns hugljúfi.
Við kveðjum vin okkar allir
starfsbræðurnir, bæði á láði og
legi og sendum allri fjölskyldunni
dýpstu samúðarkveðjur.
Kristján Jónsson, loftskm.
VÍKINGUR
336