Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Side 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Side 21
Einar Jónsson fiskifræöingur: Um „íslensk” sjó- og fiskikort Upphaflega ætlaði ég aðeins að drepa niður penna um fiskikort eða réttara sagt skort á þeim. Þegar ég fór að hugleiða og rýna frekar í málefnið varð mér ljóst, sem ég reyndar vissi, að ástandið í sjómælingamálum landsmanna, en sjókort hljóta að vera undan- fari fiskikorta, er svo bágborið, að þar yrði að bera niður fyrst, þótt um fiskikort yrði rætt síðar. Sjókort er svo nauðsynlegur hlutur í hverju skipi, að það telst ósjófært séu þau ekki fyrir hendi. Ætla mætti, að í landi sem er um- girt sæ, á allt sitt undir honum, og lengst af allar sínar samgöngur einnig, væru sjómælingar og sjó- kortagerð í hávegum höfð, rétt eins og bækur og bókagerð skipa heiðurssess hjá þessari bókaþjóð. En því er því miður ekki að heilsa og næsta furðulegt hve þessum málum er lítið sinnt. Fyrst þegar ég fór til sjós var starfi minn að mestu leyti bund- inn við dekkið, svo ég hafði lítil kynni af sjókortum. Þegar maður rakst inn í kortaklefa á stýris- vöktum komst maður þó ekki hjá að láta augun detta niður á þau kort, sem voru ætíð útbreidd á borðum, og tók þá strax eftir því, að lesningin á kortunum var oftast dönsk eða ensk, sem gaf upprunann ótvírætt til kynna. Ég hugsaði lítið um þetta þá, en eftir því sem starfsvettvangur minn hefur breyst og ég hef haft meiri bein kynni af þessum sömu kortum, hefur mér orðið æ ljósara hversu mjög við höfum vanrækt VÍKINGUR þessi mál og látið erlendum þjóð- um það eftir að mæla og festa á blað útlínur og lögun, gerð og gjöfulleika, þessara votu lands- hluta okkar. Þegar ég fór að leita að heimildum í þessar hugleiðingar varð mér og ljóst, hversu mikið ördeyðuhugafar ríkir hér á landi í þessum efnum og umsvifarammi sá, sem Sjómælingum íslands hefur verið markaður, hlýtur eðli- lega að draga dám af þessu. Ég blaðaði gegnum efnisyfirlit Sjó- mannablaðsins Víkings og Ægis síðustu 20 árin auk þeirra sex ár- ganga af Sjávarfréttum er út hafa komið. Eftirtekjan var lítil. Má nærri telja greinar er koma inn á þetta efni á fingrum annarrar handar og er þá allt talið. í þessum sérritum sjó- og fiskimanna er helst aldrei á þessa hluti minnst og veldur það furðu minni. Lausleg athugun á ályktunum Fiskiþings frá þessum árum, sem birtar eru reglulega í Ægi, gefur til kynna, að sjómælingar hafi nánast verið bannorð á þeim samkomum. Þar álykta menn árlega um alla hugs- anlega hluti, er varða sjómenn, öryggi þeirra og afkomu, en aldrei um þetta atriði að því er virðist. Þátturinn Vitamál í Ægi getur í 21

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.