Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Side 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Side 26
Hafliði Vilhelmsson: LOKAORÐ — Sögubrot Hún gekk aðeins á undan þeim tveimur, keik og teinrétt í fasi, skref hennar dálítið hröð og ákveðin og honum fannst glymja fullhátt í ganginum, viss um að þau hlytu að draga að sér athygli þeirra fáu farþega sem þarna hímdu eins og fólk sem vissi ekki hvort það var að fara eða koma. En hann var öruggur á því að enginn væri í vafa með þau þrjú, það sást utan á þeim hver var að halda á brott og hverjir voru að- eins að fylgja út á völl. Hann gekk samsíða móður hennar og varð hugsað til þess að milli þeirra, hans og hennar voru aðeins tólf ár en milli þeirra mæðga stóðu sautján ár. Hann hugsaði smástund um það. Líka um það að hún var að fara og það tók hann sárt, innst inni sárnaði honum. Þessi stúlka; og stundum flaug honum í hug að hann hefði einhvern rétt til þess að stöðva hana, og koma í veg fyrir áform hennar, að hann hefði engan rétt til að stöðva hana ekki. ídeur! Hafði hún ekki verið hans, hans eigin stúlka, í uppundir tvö ár? En hún var ekki hans, ekki meir, svoleiðis var ekki í tisku lengur, núorðið á enginn neinn, allir eiga með sig sjálfa. Allt í einu óskaði hann sér einfaldara þjóð- félags, samfélags þar sem allt væri klappað og klárt, öll hugtök á hreinu. Þar sem ekkert breytist þegar búið er að finna því form, þarsem eitthvað væri í endanlegri mynd, eilíft og óumbreytanlegt. Þau höfðu ekki neinn farangur undir höndum. Töskurnar voru allar einhvers staðar á skrölti á einhverju af þessum endalausu færiböndum sem vonlaust var að gera sér grein fyrir hvert lágu, en allir treystu í blindni að bæru hafurtaskið í rétta flugvél. 26 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.