Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Blaðsíða 36
þess að reglugerð vantar, þar sem
m.a. verður kveðið á um fram-
kvæmd námskeiða og prófa. Þessi
reglugerð mun nú vera að því
komin að fæðast, ég held hún sé
komin í dómsmálaráðuneytið."
— Hvað breytist með henni?
„Þá ætti að koma í ljós, hverjir
eru atvinnukafarar og þeir ættu að
fá betri starfsskilyrði. Og þeir sem
þurfa á kafara að halda ættu að fá
tryggari vinnubrögð.“
— Þú ert formaður í Félagi ís-
lenskra kafara. Hvað eru margir
félagar í því?
„Félagar eru nú um 50, en mjög
fáir af þeim stunda köfun sem
aðalatvinnu. Þetta starf verður
vart stundað hér nema á vegum
fyrirtækis eða einhvers konar fé-
lags, vegna þess hve mikinn
tækjabúnað þarf til. Við hjá Köf-
unarstöðinni erum t.d. með
tækjabúnað sem kostar líklega um
20 milljónir króna. Mikið af þess-
um búnaði þarf sárasjaldan að
nota, svo að það er erfitt fyrir ein-
staklinga að vera með mikið fé
bundið í honum.“
— Hvers konar fyrirtæki er
Köfunarstöðin?
„Köfunarstöðin hefur starfað
síðan 1958. Fyrst var ég bara einn
með hana, en síðan 1972 — þegar
ég kom heim frá Alsír — hefur
hún verið hlutafélag.
Við erum þrír kafarar núna við
Köfunarstöðina, auk mín eru það
Einar sonur minn og svo Aðal-
steinn AÐalsteinsson, sem hefur
verið að læra hjá okkur.
Við vinnum aðallega við ýmsa
mannvirkjagerð, að undirbyggja
mannvirki sem reist eru í sjó, t.d.
brimbrjóta, en líka við stíflur raf-
orkuvera, eins og í Búrfelli.
Við Búrfell höfum við lent'í
erfiðustu verkefnunum, við stífl-
urnar inni í Bjarnarlóni.“
— Hvað var erfitt við þá vinnu?
„Þetta er jökulvatn, og við
þurftum að vinna þarna inni í
göngum í alls konar krákustíg-
um.“
— Þú nefndir áðan að þú hefðir
verið í Alsír. Hvað varstu að gera
þar?
„Ég vann hjá þýska fyrirtækinu
Hochtief við hafnargeðrina í
Straumsvík, og þegar henni var
lokið fór ég á vegum fyrirtækisins
til Alsír. Hochtief tók að sér að
endurbyggja þar höfn í borg sem
heitir Skikda. Þar var ég í tvö ár.
Einar sonur minn var með mér og
íslenskur aðstoðarmaður. Við
Kristbjöm með tvo kafarahjálma. Til vinstri er mjög gamall hjálmur, framleiddur af bandaríska sjóhcrnum 1917. Slíkir hjálmar
eru til í notkun enn í dag. Til hægri er Knistbjörn með nýlegan hjálm, sem þó er í flestum aðalatriðum eins gerður.
36
VÍKINGUR