Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1984, Page 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1984, Page 12
Fengum bara... Það skapaðist bara þannig að það vantaði ken- nara við stýri- manaskólann á Höfn, daginn sem átti að setja skól- ann. Það var búið að vera að reyna að fá mann í þetta og það end- aði með að ég sló til. Víkingur 12 aö benda á einhver ákveðin atriði, en það er ekki hægt i þessu tilfelli, það var í raun ekki neitt eitt, heldur mörg atriði, sem tvinnast inn i þetta.“ Kúreki í brúnni Við hlaupum aðeins afturá- bak i tímanum, allt aftur á Sæ- valdstimann. Þá lenti Örn einu sinni i gæslunni fyrir landhelg- isbrot. Af þvi er frásögn Arnar svona: „Jú þetta var nú á þeim árum, að það var ekkert litið mjög dökkum augum af al- menningi aö vera tekinn i landhelgi og mjög margir af þessum skipstjórum voru meira og minna inni í land- helgi. Sökum reynsluleysis á þessum árum, þá gekk þetta svolitið á afturfótunum hjá okkur og ég endaöi fyrir sjó- rétti hjá sýslumanni fyrir land- helgisbrot. Eftir góða humarvertíð um sumarið, skelltum við okkur 3 félagar í sumarfriinu okkar til Kaupmannahafnar. Þar keypti ég mér gallaföt og kúrekahatt og var svo aðallega i þessum fötum til sjós, eftir að ég kom heim. Nú, Albert gamli kemur þarna upp að hliðinni á okkur, þar sem við vorum með veiðar- færin úti. Það er sendur gúmmíbátur yfir til okkar, og ég sóttur til skrafs og ráða- gerðar viö skipherrann á varöskipinu. Ég fór strax með þeim út i varöskipið og þegar ég kem upp í brúna, þá er skipherrann þar og hluti af mannskapnum um borö, þannig að það er frekar fjöl- mennt þarna. Ég stóð þarna eins og hálfgerður kálfur i þessum gallafötum, með skræpóttar slæður og kúreka- hatt. Eftir að hafa heilsað skipherranum, þá geng ég svona eitt eða tvö skref aft- urábak og við stöndum þarna hvor á móti öðrum og virðum hvor annan fyrir okkur, og, svona til að gera eitthvaö, þá færði ég hægra jakkalafiö aft- ur fyrir bak, eins og ég væri að taka það frá skammbyssu- beltinu. Þeir urðu voðalega hrifnir af þessu, þarna i brúnni, jafnvel skipherrann lika. Þetta var nú það eina sem gerði þetta ööruvisi en aðrar land- helgistökur, aftur á móti hafa skapast ýmsar sögur um þetta og þær eru margbreyti- legar.“ Bull og vitleysa — Eina útgáfu hef ég heyrt, sem segir að stýrimaður á varðskipinu, sem kom að sækja þig, hafi alls ekki viljaö trúa að þessi kúrekaklæddi strákur væri skipstjórinn og það hafi verið farið að siga talsvert i hann vegna þess að hann hélt að verið væri að leikaáhann. „Þetta eru bara sögur, bull og vitleysa. Þaö voru skóla- bræður minir sem komu aö ná i mig og þeir vissu að ég var skipstjórinn." Maður verður víst að hafa þaö sem sannara reynist i þessu sem ööru, en skolli hefði verið miklu skemmti- legra aö geta haldið áfram að trúa hinni sögunni. Skróparinn orðinn skólastjóri Svo kemur þar sögunni að þessi strákur, sem vildi ekki læra nema sem allra minnst i barnaskóla og skrópaði eins og hann gat, er allt i einu orð- inn skólastjóri, reyndar þá kominn nokkuð vel á þritugs aldurinn. Hvernig gat það nú oröið? „Það skapaðist bara þannig aö það vantaði kennara viö stýrimannaskólann á Höfn, daginn sem átti að setja skól- ann. Það var búið aö vera aö reyna að fá mann i þetta og það endaöi með að ég sló til, en þó ekki nema fram að ára- mótum. Og það stóð. En það væri gaman að segja frá þvi i leiðinni að Jón- as, sem þá var skólastjóri fyrir sunnan, hann var mjög sveigj- anlegur með undanþágur frá kröfunum um aldur og sigl- ingatima nemenda, miklu sveigjanlegri heldur en mér er sagt að nú sé. Meðal nem- enda minna þarna var bróðir minn, sem þá var sextán ára og fékk undanþágu til að sitja i skólanum. Hann hefur veriö stýrimaður siðan og ætlar svo að kenna við skólann hér i vet- ur. Hann vildi fara í skóla þetta ár, og hefði hann ekki fengið undanþáguna er liklegt að hann heföi farið i annan skóla og inn á allt aðra braut. Þetta er athugandi núna, þegar kvartað er undan litilli aösókn að skólanum." Sko, ástandið er vont Þegar hér er komið frásögn- um af ævintýralegum ferli

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.