Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1990, Qupperneq 57
FÉLAGSMÁL
LSS og a.m.k. tveir sótt um yfir-
færslu á réttindum til sjóösins,
en báöir fengið synjun.
Á árinu 1988 til 1989 hættu
fjórir félagar SKFÍ störfum og
fóru á eftirlaun, einn þessara
manna er í Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins, hann gat hætt
60 ára og fær í mánaðar-
greiðslur 108.700-, kr. úr líf-
eyrissjóði, tveir eru í Lífeyris-
sjóði Eimskipafélags íslands,
annar gat hætt 65 ára samkv.
gömlu reglunni, hann fær í
mánaðargreiðslur 67.080-,kr.
úr sjóðnum. Hinn hætti líka 65
ára, sætir skerðingu sam-
kvæmt nýju reglunni og fær
hann 61.757-, kr. úr sjóðnum.
Fjórði félaginn er í Samvinnu-
sjóðnum, hætti 67 ára og varð
að sæta skerðingu úr 70 árum í
67 og fær í mánaðargreiðslur
60.682-,kr. úr SL.
Þessir menn hafa allir haft
svipuð laun í starfi og greitt
svipaða upphæð í sjóðina.
Þessi verður þó niðurstaðan að
starfsævi lokinni, sá sem
lengst starfar fær minnstu
greiðslurnar, eða 58,8% af
hæstu greiðslu þessara
manna.
Ég sþyr, finnst mönnum
hægt að halda lengur svona
áfram, verðum við ekki að
spyrna hér viö fótum og ná
sambærilegum kjörum fyrir alla
okkar félaga, þegar starfsævi
lýkur?
Vantar herslumun
Á mörgum undangengnum
þingum FFSÍ hafa lífeyrismál
verið ofarlega á baugi, og segja
má að nú vanti aðeins herslu-
mun til að allir þeir er sjó-
mennsku gera að ævistarfi
njóti lífeyrisréttar við 60 ára ald-
ur. Uppúr n.k. áramótum eru öll
yfirmannafélögin með lausa
kjarasamninga. Allt sem áunn-
ist hefur í lífeyrismálum hefur
unnist með kjarabaráttu, nú er
því tækifærið hjá viðkomandi
félögum að láta sitja viö sama
borð kjör manna, í starfi og eftir
aö starfsævi lýkur og ganga
ekki frá kjarasamningum fyrr
en lífeyrismálin eru í höfn.
í Ijósi fyrri samþykkta undan-
genginna þinga FFSÍ um líf-
eyrismál skora ég á þingið að
finna með hvaða hætti best
verður staðið að lokaáfanga líf-
eyrismála sjómanna.
Jafnframt að þingið feli stjórn
FFSÍ að vera á varðbergi gegn
öllum hugsanlegum tilburðum
löggjafans eða annarra til að
skerða áunninn og sjálfsagðan
lífeyrisrétt sjómanna.
HÓPSNES GK 77
íslenskt nútíma fiskveiðiskip
er háð góðu og öruggu frystikerfi
með góða þjónustu.
Með þökk fyrir viðskiptin, óskum við
útgerð og áhöfn til hamingju með hið nýja skip
AVD Álesund
P.B. 2065
6021 Álesund
Tonningsgt. 19
Tfl: (071) 29 440
Fax: (071)26 134
Mob. (090) 82 154
SKtflERNER EUREKA A/s
PROCESS DVISION
P.B. 38 - 3401 LIER
Tel. (03) 85 04 00 Fax. (03) 85 10 40 - Tix. 78 608 thune n
AVD Island
P.B. 10194
110 Reykjavfk
Island Lyngháls 3
Tfl: 354 1 685320
Fax: 354 1 674270
Mob: (985) 23225
AVD: Seattle
4237 24th Avenue West
Seattle WA 98199
USA
Tfl: (206) 28 23 880
Fax: (206) 28 10 082
Telex: 47 40 089
AVD Tromsö
P.B. 3549
9001 tromsö
Stakkevoldvn. 35
Tfl: (083) 58 727
Fax: (083) 58 726
Mob: (090) 15 718