Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1991, Síða 11
Viðtal jSp
sóknarmark. Mér líst ekkert á
þá stefnu því hún gerir okkur
erfiöara fyrir að samræma
veiðar og vinnslu auk þess sem
öll markaðsstarfsemi verður
þyngri. í annan stað mun það
leiða til aukinnar samkeppni
milli skipa um aflann, það yrði
farið að róa í hvernig veðri sem
er og útgerðarkostnaður myndi
stóraukast.
Því er haldið fram til stuðn-
ings sóknarmarkinu að það
gefi einstaklingunum meiri
tækifæri til að njóta sín, að afla-
kóngarnir blómstri. Vafalaust
er nokkuð til í því að örfáir skip-
stjórar gætu aflað betur, en þó
einkum þeir sem hafa yfir
stærstu og öflugustu skipunum
að ráða. Núverandi kerfi gefur
okkur kost á að hafa einhverja
heildarstjórn á veiðum og
vinnslu. Þá er hægt aö skipu-
leggja veiðarnar eftir ástandi
markaðsmála, skipta árinu nið-
ur í veiðitímabil osfrv. Með því
móti fáum við gæðakónga og
verðmætakónga í staðinn fyrir
aflakóngana."
Hlynntur núverandi
kvótakerfi
— Ber þá að skilja þig svo
að þú sért sáttur við núverandi
kerfi?
„Ég var tiltölulega sáttur viö
þetta blandaða kerfi sóknar- og
aflamarks, enda rýrnuðu afla-
heimildir okkar þegar það var
aflagt. En fyrir heildina á nýja
kerfið að vera betra, það á að
vera þjóðhagslega hagkvæm-
ara. Það er Ijóst að lífskjör á
íslandi eru háð sjávarútvegi. Ef
kostnaður við sóknina eykst
leiðir það óhjákvæmilega til
rýrnandi lífskjara.
Þess vegna er ég hlynntur
núverandi kerfi. Það veitir
hverju fyrirtæki möguleika á að
skipuleggja sinn rekstur, halda
rekstrarkostnaði niðri og að-
laga veiðar og vinnslu mark-
aðsaðstæðum á hverjum tíma.
Kerfið tengir best saman veið-
ar, vinnslu og markaðsmál.
Auk þess á að vera hægt að
fylgjast með þvi að farið sé eftir
reglunum án þess að halda
uppi miklu eftirliti. Loks á það
að geta gengið án þess að
stjórnmálamenn séu sí og æ að
skipta sér af því.“
— Hvernig líst þér á hug-
myndirnar um veiðigjald,
kvótaleigu eða hvað sem það
er nefnt?
„Það má alveg hugsa sér
slíkt að ákveönum skilyrðum
uppfylltum. Það þarf aö eiga
sér stað veruleg hagræðing í
útgerð á íslandi. Þegar útgerð-
in er búin að borga þá hagræð-
Oddeyrina á Samherji
félagi við aðra.
VÍKINGUR 11