Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1991, Page 16
TAL UM VINNUÞRÆLKUN
Frystum fiski landaö úr
Akureyrinnl. Samherji
flytur allar sínar afurðir
út sjálfur.
Þorsteinn hefur legið
við bryggju á Akureyri
síðan skipið lenti í ís og
skemmdist.
Akureyringum finnst
lítil bæjarprýði að
þessum ryðkláfi við
Torfunesbryggjuna, en
Samherji fær yfir 1100
tonn af kvóta út á
skipið.
16 VÍKINGUR
Að ganga þokkalega
um stofnana
— Það er lenska hjá sjó-
mönnum og útgerðarmönnum
að skammast út í störf fiski-
fræðinga. Hvert er þitt viðhorf til
þeirra?
„Ég starfa í sjávarútvegi og
vonast til aö halda því áfram.
Það versta sem gæti komið
fyrir mig og Samherja væri af
gengið væri að fiskstofnunum
dauðum. Þar höfum við vítin að
varast frá Noregi þar sem
gengið hefur verið á hvern fisk-
stofninn á fætur öðrum og hon-
um eytt í skjóli geysilegra ríkis-
styrkja til sjávarútvegs. Ég
vona að við berum gæfu til að
ganga þokkalega um stofnana
og að um það ríki sæmileg sátt
milli sjómanna og útgerðar-
manna. í stað þess að deila á
störf Hafrannsóknastofnunar
ættum við að beita okkur fyrir
því að efla hana. Ég held að
umgengnin um íslenska fisk-
stofna sé þokkaleg þótt hana
megi eflaust bæta. Það þarf að
koma á málefnalegri umræðu
og betra samstarfi milli sjó-
manna, Hafrannsóknastofnun-
ar og sjávarútvegsráðuneytis-
ins um fiskveiðistefnuna," segir
Þorsteinn Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samherja
hf. á Akureyri.
það sameiginlegt að geta ekki
nýtt sér tvöföldunaráhrif línu-
veiða á kvótann yfir fjóra erfið-
ustu mánuði ársins. Þess
vegna hafa aflaheimildir skipa
á Norðurlandi verið að minnka.
Hlutdeild smábáta í aflanum
hefur verið að aukast þótt það
hafi hvorki komið Grímseying-
um né öðrum Norðlendingum
til góða. Ég er hins vegar þeirr-
ar skoðunar að einn stærsti
gallinn á kvótakerfinu hafi verið
sá að það ýtti undir óheftar
smíðar á smábátum.1'