Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1991, Side 27
Utan ur hcimi
Skipsskaði
I janúarbyrjun gerði ofsaveð-
ur við Bretland og í því veðri
hvolfdi 1.876 tonna tankskipi,
Kimya sem skráð var á Möltu,
undan ströndum Wales. Með
skipinu fórust allir skipverjar 10
að tölu. Bresk sjómannafélög
hafa farið fram á að hafin verði
rannsókn á þessu slysi hið
fyrsta þar sem því svipar mjög
til slyssins á tankskipinu Syn-
etu, sem fórst við Skrúð í des-
ember árið 1986. Bæði þessi
skip voru í eigu sama aðila,
Heggerstona Marine, en það
fyrirtæki er breskt.
(„vegna þreytu af völdum
áfengisnotkunar") og jafnframt
ásakanir á hendur Exxon fyrir
að hafa ekki hæfan skipstjóra
og nægjanlega hvílda og góða
áhöfn. Fækkað hafði verið í
áhöfn skipsins úr 33 mönnum
niður í 19 og hafa verkalýðsfé-
lög farið fram með þá kröfu að
settar verði kröfur um há-
marksvinnutíma líkt og er gert í
flugvélum og hjá flutningabíl-
stjórum. Alþjóða flutninga-
verkamannasambandið (ITF)
ætlar að taka málið fyrir hjá
IMO til að hindra frekari fækk-
anir í áhöfnum skipa en kröfur
útgerðarmanna eru að fækka í
áhöfnum og breyta vinnufyrir-
Enn af Exxon
Valdez
komulagi. ITF telur skýrslu
slyssins vera gott vopn í barátt-
unni um aukið öryggi og frekari
fækkun í áhöfnum skipa.
Bylting í
skipagerð
Alltaf eru nýjar skipagerðir
að skjóta upp kollinum en
sjaldnar er um byltingarkennd-
ar gerðir, eða tímamótaskip að
ræða. Þó fékk Bellskipafélagið
nýlega afhent nýtt skip Bell
Pioneer sem fellur undir það að
vera tímamótaskip. Bell Pion-
eer er svokallað „lúgulausf
gámaskip (open hatch) og er
talið að slíkt skip geti sparað allt
að 25% í hafnar- og losunar-
tíma. Fyrir framan brú er þó ein
lest með lúgu og tekur hún 30
gáma en allt í allt tekur skipið
300 gáma og þar af 60 frysti-
gáma. Gámar Bell-skipafé-
lagsins eru um 30 sm breiðari
heldur en ISO gámarnir og er
það gert til að Euro-pallar passi
betur inn í gámana. Öflugar
dælur eru notaðar til að halda
lestum skipsins þurrum og af-
kasta þær allt að fjórum sinnum
meira vatnsmagni heldur en
skipið ætti að geta fengið í lest-
Bell Pioneer
Gámaskip
Lengd 114,5 m
Breidd 16,92 m
Djúprista 7,52 m
Burðargeta 5.100 t
Gámar 300 TEU
Hraði 15 sm.
Nýlega var birt lokaskýrsla
vegna strands olíuskipsins
Exxon Valdez og þess mikla
mengunarslyss sem það olli.
þar kom fram aö aðalorsök
slyssins var mistök þriðja stýri-
manns við stjórntök skipsins
v®gna þreytu og mikils vinnu-
álags sem á honum hafði verið
um borð í skipinu fyrir strandið.
Einnig voru ásakanir á hendur
skipstjóranum, Hazelwood,
fyrir að sjá ekki til þess aö ör-
u9g siglingavakt væri haldin
Hilmar
Snorrason
skipstjóri
Exxon Valdez í drætti
eftir að hafa náöst á
flot eftir strandið.
VÍKINGUR 27