Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1991, Qupperneq 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1991, Qupperneq 38
BALTIMORE ■ ■ ■ Sædýrasafnið í Baltimor. Þaö er talið eitt hið besta í Ameríku. söngur var aöeins rofinn af tóni eimvagnsflaut- unnar. Meö lagningu og starfrækslu fyrstu járnbrautar í Ameríku höfðu menn í Baltimore tryggt vöxt og viðgang borgarinnar, sem eins og fyrr byggðist á siglingum, verslun og viðskiptum. Með lagningu ritsímans 1844 tengdist Baltimore umheiminum enn frekar og verslun og viðskipti í borginni og umferð um höfnina var stöðug og jöfn. Nýtt hlutverk „innri hafnarinnar“ Allt frá þessum tíma hefir höfnin í Baltimore haldið sínum hlut í flutningum og skipaumferð. Breyttir tímar og þarfir hafa ekki fariö hér hjá garði. Elsti hluti hafnarinnar, Innri höfnin, er í dag vinsælasti ferðamannastaður á þessu landsvæði og fátt sem minnir á útskipun kola, korns og ann- ars varnings, en því meira fer fyrir útimörkuðum og veitingahúsum, að ógleymdu einhverju besta sædýrasafni sem undirritaður hefir skoðað. Það er í nýrri sjö hæða byggingu, sýnir meira en 5000 sækindur af furðulegasta uppruna og alls taka kerin um 4 miljónir lítra af sjó og ferskvatni. Líkt og hér í Sædýrasafninu er fleira sýnt en fiskar og má þar nefna fugla ýmisskonar og smærri spendýr. Þessi stofnun, National Aquar- ium in Baltimore, er svo vinsæl meðal borgarbúa og aðkomumanna, að oft getur reynst erfitt að komast þar inn um helgar. 38 VÍKINGUR Spangeled Banner" og má ætla að þessir æsi- legu atburðir hafi orðið honum efni í þetta fagra tónverk. Höfnin varö lífæð borgarinnar og þaðan sigldu fjórmöstruðu Clipperarnir um öll heimsins höf. Á 18. og 19. öld, þegar landnám þjóðarbrotanna frá Gamla heiminum var í algleymingi og landnem- arnir brutu sér leið æ lengra vestur á megin- landið, varð þörf fyrir samgöngur innanlands sí- fellt brýnni. Minni skip sigldu upp ár og sýki, en þar sem þær voru ekki fyrir hendi vandaðist mál- ið. Höfnin í New York stækkaði um þessar mundir á kostnaö hafnarinnar í Baltimore, einkum vegna þess að þaðan var auðveldara að koma vörum inn í land um Erie-sundið. Framámenn í Baltimore sáu að við svo búið mátti ekki standa. Þeir stofnuðu fyrsta járnbraut- arfélagið í Bandaríkjunum árið 1827 og lögðu járnbraut frá Baltimore til Ohioárinnar, 380 mílum vestan Baltimore. Það tók þrjú ár. IJmferð um brautina frá Baltimore til Ohio með farþega og vörur hófst árið 1830. Þar með var fyrsta járnbraut í Ameríku komin í gagniö og á næstu árum og áratugum komu slík farartæki í stað uxakerra og hestvagna. í stað stritandi hesta og uxa sá nú gufuvélin um erfiðið og í áratugi má segja að bandaríska þjóðin hafi alist upp við hin þungu og reglulegu slög járnbrautarlestarinnar, þar sem járnhjól runnu eftir járnteinum og þessi eintóna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.