Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Blaðsíða 46
JÁ, HANN ER HEIMA
Heyröu elskan,
hann félagi minn
ætlar aö koma viö
hjá mér, hann er
hálf einmana.
Heyrdu elskan, hann félagi minn ætlar að
koma við hjá mér, hann erhálfeinmana. Já, hann
er einn í bænum, þurfti að mæta á fund, ekkert
flogið í dag. Jú, auðvitað manstu eftir honum.
Hann var með mér í skólanum, þú manst á öðru
stigi í Stýrimannaskólanum. Já, hvað með það,
hann býr úti á landi og þekkir engan hérí bænum.
Hvað, það er nú ekki á hverjum degi sem við
hittumst. Nei, allt í lagi.
Steikin á borðið, rauðvínið í glösin, börnin vilja
borða áður en þau fara með ömmu. Við borðum.
Oj, þetta er vont kjöt, það blæðir úr matnum, af
hverju er ekki kakósúpa? spyr drengurinn.
Þetta er seigt, það er ekki hægt að tyggja þetta,
ég borða ekki svona, segir stúlkan. Amma reynir
að sansa börnin, þau hlusta ekki. Við borðum
þegjandi. Steikin er seig, rauðvínið rammt. Rex í
börnunum.
Amma spyr: Elskan, getur HANN ekki komið
við hjá mér á morgun og gert við gluggann í
stofunni, hann lekur.
HANN lítur upp. Jú...auðvitað tengdamamma.
Þögnin tekur við. Símin rýfur þögnina. Já,
halló?
Er HANN við.
Já, augnablik.
Síminn elskan.
Já, halló? Já, blessaður. Nei, eiginlega eigum
við von á félaga utan aflandi í kvöld. Ha, nei, nei.
Það er allt í lagi. Sjáumst þá. Bless.
Heyrðu, elskan. Hann kollegi minn ætlarað líta
inn í kvöld. Já, allt í lagi. Tek af borðinu, set í
vaskinn, vaska upp. HANN þurrkar.
Síminn hringir.
Já, halló?Jú, þetta erhann. Já, blessaður. Nei,
hvað segirðu....blablabla.
Ég hlusta ekki lengur. Þurrka upp. Fylgi
mömmu og hálfunglingunum fram og kveð. Klára
að ganga frá í eldhúsinu.
Sest við sjónvarpið. HANN kemur eftir hálf-
tíma. Jæja elskan, ekki hress? Jú, jú, það vantar
ekki. Býður upp á meira rauðvín. Drekkum þegj-
andi, ég spyr: Hver var þetta ? Jú, það var fundur í
félaginu um daginn og þeir deila, ég verð að vita
hvað er um að vera því það er fundur á mánu-
dagsmorgun.
En....segiég. Annarhálfunglingurinn á tímahjá
tannlækni þá. Ég hélt að þú færir með honum?
Ja, ég kemst ekki....
Ég heyri mig mótmæla, ég kemst ekki úr vinn-
unni þvíég á að mæta á fund. Við finnum út úrþví,
segir HANN. Já, ég treysti HONUM til að finna út
úrþví.
Síminn hringir.
jVluÐ/ty
STOFNAD
7. Okt. 1893
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
íXldan
^VENFÉUC/^
JVUÐA//
STOFNAD
11. feb. 1939
hefur á undangengnum árum,
leitast við að efla félagsstarf og tengsl við félagsmenn.
Verðandi skipstjórnarmenn athugið! Við inngöngu í félagið er lagður
grunnur að félags- og kjaralegum réttindum. Höldum hópinn, vertu með.
Skrifstofan er í Borgartúni 18, 105 Rvík., s. 629933 og 629938.
Aldan sendir félögum sínum og fjölskyldum þeirra
kveðjur á sjómannadaginn og árnar þeim allra heilla.
Skipstjóra- og stýrimannafélagiö ALDAN er elsta stéttarfélag landsins.