Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Qupperneq 51
aður fyrir útflytjendur í vestri.
„Og Kaupmannahöfn er hliðið
að AusturEvrópu," bendir hann
stoltur á.
PAKKHÚSA-
FLÆMI
Til þess að bæta stöðu hafn-
arinnar í samkeppninni hafa
mannvirki hennar verið í stöð-
ugri endurnýjun. Meðal þess
tækjabúnaðar sem til er í Kaup-
mannahöfn má nefna Hercu-
lesflotkrana sem lyftir 204
tonnum og nýtt tölvukerfi sem
hefur auðveldað alla stjórnun
og yfirsýn. Auk þess er þar að
finna einu fríhöfn Danmerkur
sem hefur þann kost fyrir inn-
flytjendur að þeir geta beðið
með að greiða tolla og skatta
þangað til varan er send á sölu-
stað.
Höfninni má skipta í fjóra
hluta. Það er elsti hlutinn, næst
miðbænum, en þar er athafna-
svæði fyrir ferjur, skemmti-
ferðaskip oþh. Annar hlutinn er
Fríhöfnin sem er fyrir norðan
Löngulínu. Þar norður af er
Norðurhöfnin sem er í beinum
tengslum við mikið iðnaðar-
svæði auk þess sem þar er
gámahöfn og bílahöfn og mikið
flæmi pakkhúsa. Loks er það
Austurhöfnin á Amager en þar
er góð aðstaða til að landa olíu,
bensíni, kolum, málmgrýti og
öðrum efnum sem flutt eru
laus.
Pakkhúsin sem fyrirfinnast á
hafnarsvæðinu eru engin
smásmíði því samanlagt flatar-
mál þeirra er svipað og 70
knattspyrnuvellir af fullri stærð.
Þau eru af öllum gerðum og þar
er hægt að geyma hvers kyns
varning.
TÖLVUKERFI TIL
ÚTFLUTNINGS
Umferðinni um gámahöfnina
er stjórnað með hjálp tölvu-
kerfis sem nefnist Danport og
er heimatilbúið. Það hefur gert
yfirvöldum kleift að mæta 20%
aukningu gámaflutninga á einu
ári, án þess að bæta við einum
einasta manni, hvað þá skrif-
borði. Með kerfinu er hægt að
fylgjast með hverri hreyfingu
gámanna frá því þeir eru settir
á land þangað til þeim er skip-
að út aftur. Útgerðir skipanna
geta tengst kerfinu um útstöð
og kallað fram upplýsingar um
ástand og staðsetningu gáma
sinna á hverju augnabliki allan
sólarhringinn.
„Danport-kerfið hefur reynst
svo vel að nú flytjum við það
út,“ segir Eric Schafer. Búið er
að koma upp Danport-kerfi í
Stokkhólmi og Málmey og
verið er að setja það upp í Rost-
ock í því sem áður hét Austur-
Þýskaland. íframhaldi af þróun
Danport hafa hafnaryfirvöld
farið út í ráðgjöf um hönnun
hafna og vinna nú að því að
hanna mikil hafnarmannvirki
fyrir yfirvöld á Maldive-eyjum á
Indlandshafi.
Á vegum dótturfyrirtækis
hafnarinnar, Kebenhavns Fri-
havn & Stevedoring Co., KFS,
starfar fjölmenn sveit fólks sem
annast lestun og losun, útleigu
tækja, bygginga og athafna-
svæða til viðskiptavina hafnar-
innar. Stjórnendur KFS hafa
leitað í smiðju Japana og komið
upp svonefndum „gæðahringj-
um“ í Fríhöfninni í því skyni að
auka gæði þjónustunnar. Þeir
eru opnir fyrir hugmyndum
starfsmanna og frá þeim hafa
komið margar úrbætur á dag-
legum vinnubrögðum sem
sparað hafa bæði KFS og við-
skiptavinunum tíma og fé.
Samanlagt gerir þetta Kaup-
mannahöfn að blómstrandi
fyrirtæki. Árið 1989 höfðu yfir
50 skip viðkomu þar á hverjum
degi. Að vísu drógust flutningar
örlítið saman að magni til, úr
9,3 milljónum tonna í 9,1 mill-
jón, en það á sér skýringu í
Stór gámakrani
(kannski bróðir Jaka í
Sundahöfn) hífir gám
um borð í skip. Höfnin
er í góðu sambandi við
vega- og járnbrauta-
kerfi Danmerkur.
VÍKINGUR 51