Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Síða 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Síða 60
AD STYRA 60 VÍKINGUR STJORNBORD ÚR RYÐFRÍU STÁLI fyrir línu- og netaspil Vökvastjórnlokar úr ryðfríu stáli, með innbyggðum öryggis- loka og magnloka. Rafmagnskúplingar Þjónustuaðilar O/ um land allt ÉANDVJEiAflHF SMIÐJUVEGI66, KÓPAVOGI. SlMI: 76600 sögumaður var farinn frá borði og skipið komið á fulla ferð norðvestur af Gróttu, fór skip- stjórinn úr brúnni og sagði um leið við 2. stýrimann, sem var á vakt: „Farðu til Vestmanna- eyja“. Hann var kominn hálfa leið niður stigann að skip- stjóraíbúöinni er hann sneri við, kom í brúardyrnar og sagði: „Stýrimaður, ég meina sko sjó- leiðina“. Þarna vildi þessi af- leysingaskipstjóri í sinni fyrstu ferð hafa það á hreinu að hann hefði ekki skipað stýrimanni sínum að sigla þvert yfir Reykjanesið. [ reglum um störf skipstjóra, sem áður er á minnst, kemur fram að hann hefir drjúgar eftir- litsskyldur, t.d. með stýrimönn- um á vaktinni. Flestir skipstjór- ar munu, þegar mikið liggur við, vera sjálfir i brúnni ef tvísýnt er um siglinguna eða hætta steðj- ar að. Ef slys hefir orðið, svo sem árekstur við annað skip eða strand, reynir oft mjög á starfshæfni skipstjóra. Þá er mikilvægt að hann hafi alla þræði í hendi sér. Gefi skýr og einföld fyrirmæli og sé undir- mönnum sínum fyrirmynd í hví- vetna. Menntun skipstjórnar- manna auðveldar þeim stjórn- un. Fleira þarf að koma til, svo sem sjálfstjórn og andlegt jafn- vægi. Mikil ábyrgð hvílir á þeim sem veljast til skipstjórnar, svo og á þeim sem fela mönnum slík störf. Flestir sem sækja stýrimannaskóla verða síðar yfirmenn til sjós. Mikils er því um vert að þeir sem þaðan út- skrifast og fá réttindi til skip- stjórnar séu heiðarlegir menn og vel hugsandi. Ekki síður til sjós en við stjórnun flugvéla þurfa menn að vera andlega heilir. Flugfélög hafa um árabil beitt sálfræðilegum athugun- um við val á flugmönnum. Þótt slík próf séu ekki algildur mæli- kvarði hafa þau þó í mörgum tilfellum sannað gildi sitt. Þeim er þetta ritar er ekki kunnugt um að slíkum aðferðum sé beitt við val á yfirmönnum á skipum. Allir sem sækja um inngöngu í Stýrimannaskólann í Reykjavík leggjafram sakavottorð. Undir- rituðum er kunnugt um að menn með afbrotaferil eru ekki teknir í skólann og er þaö vel. Fyrir getur komið að skip- stjóri þurfi að gerast dómari. Þvf er mikils um vert að sá hinn sami hafi óflekkað mannorð, sé valinkunnur heiðursmaður. Agavald skipstjóra um borð í skipi er skilgreint í 70. gr. sigl- ingalaga. Þar er tekið fram að skipstjóri eða sá sem gegnir störfum fyrir hann geti þröngv- að skipverjum til hlýðni með valdi, ef það er nauðsynlegt til að halda góðri reglu á skipinu. í framhaldi af þessu ákvæði er tekið fram að leyft sé að grípa til hvers kyns neyðarúrræða til þess að halda góðri reglu á skipi þegar það er í háska statt eða skipverjar gera samblást- ur. Hver skipverji er þá ótil- kvaddur skyldur til að veita yfir- manni aðstoð. Ekki má þó beita meira harðræði en nauðsyn- legt er til þess að halda uppi aga og góðri reglu. Hlýðniskylda skipverja er, vegna sérstöðu sjómanna- starfsins, meiri og víðtækari en annarra launamanna. Hlýðnis- kyldan er að heita má algjör. Réttindi Að framan hefir nokkuð verið fjallað um ábyrgð og skyldur skipstjórnarmanna, sem eru víðfeðmari en svo að þeim verði gerð viðhlítandi skil í stuttri grein í tímariti. í þessum málum eru einnig nokkur grá svæði, þar sem leikið getur á tveim tungum hvernig hugtök skuli túlkast. Réttindi skip- stjórnarmanna liggja Ijósari fyrir. Sá sem lokið hefir tilskild-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.