Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Blaðsíða 62
AD STYRA
62 VÍKINGUR
ekki vera. Þá er tekið fram í lög-
unum að heimilt sé að synja
manni um útgáfu atvinnuskír-
teinis ef „ákvæði 2. málsgrein-
ar 68. greinar hegningarlaga
eiga við um hagi hans“.
í þessum lögum eru sem
sagt upplýsingar um atvinnu-
réttindi skipstjórnarmanna. Á
hinn bóginn eru ekki skýringar
á öðrum réttindum og má vera
að þau finnist í öðrum lögum
eða reglugerðum. Spurt er:
Hefir skipstjóri leyfi til að gefa
saman brúðhjón? Að þessu
hefir oft verið spurt og eru svör
á báða vegu. Sá sem þetta ritar
minnist þess er ungt par tók sér
far með Goðafossi Eimskipafé-
lagsins árið 1948. Ungi maður-
inn, sem í hlut átti fór til skip-
stjórans, sem var sá reyndi sjó-
maður Pétur Björnsson, og
spurði hvort hann vildi ekki
gera sér þann greiða að gifta
sig og unnustu sína úti á hafi,
helst einhvers staðar miðja
vegu milli íslands og megin-
lands Evrópu. Skipstjórinn
færðist undan þessu. Hann
sagði: „Blessaðir látið þér held-
ur gifta yður og kærustu áður
en við látum úr höfn“. Og þar
við sat. Þrátt fyrir svar þessa
reynda skipstjórnarmanns
segir í lögum að skipstjóri hafi
vald til löggjörninga.
Að endingu eru hér stuttar
umsagnir tveggja reyndra
stjórnenda, skipstjóra á milli-
landaskipum og skólameistara
Stýrimannaskólans í Reykja-
vík: Guöjón Ármann Eyjólfsson
skólameistari um réttindi og
skyldur skipstjórans:
„Sérhver skipstjóri verður
alltaf að hafa að leiðarljósi að
æðsta skylda hans er að
tryggja ætíð öryggi skips og
áhafnar sem honum er trúað
fyrir. Ekkert getur leyst hann
undan þeirri ábyrgð og skyldu.
Hann verður ávallt að gæta
þeirrar varúðar og hygginda
sem góð sjómennska krefst og
aðstæður kunna að útheimta
hverju sinni við siglingu skips-
ins. Fyrirhyggja, aðgát og
gætni er aðalsmerki allra góðra
skipstjóra. Til þess að ná mark-
miðum sínum verður skipstjóri
að hafa vald til að taka á hverri
stundu þær ákvarðanir sem
best geta tryggt öryggi skips og
áhafnar. Það vald hefir skip-
stjóri sem æðsti maður skips-
ins. Þetta er viðurkennt í sigl-
ingalögum. Það er enfremur
þekkt hugtak meðal allra sjó-
manna:
„Að á hverju skipi er aðeins
einn skipstjóri".
í því eru m.a. fólgin réttindi og
skyldur skipstjórans."
Magnús Þorsteinsson, í ára-
tugi skipstjóri hjá Eimskip:
„Þau gömlu góðu gildi að
skipstjóri beri ábyrgð á skipi
sínu og að öörum á skipinu beri
að fara að fyrirmælum hans
hafa ekki breyst. Að hver skips-
maður, hvort heldur er á stjórn-
palli eða í vélarrúmi, sé starfi
sínu vaxinn og sinni því af full-