Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Blaðsíða 22
Háar
tölur
Áætlað er að á meðalaldri gámaskips
muni 10 gámar losna um borð sökum lé-
legs sjóbúnaðar og þar af munu fimm
þeirra falla fyrir borð. Tíu prósent þeirra
munu innihalda hættulegan og mengandi
varning. Samkvæmt mati breskra aðila
mun tjón af vöidum hvers gáms sem
losnar úr sjóbúningi vera um 75.000 pund
en 350.000 pund falli gámurinn fyrir borð.
[ þessum tölum er metið verðgildi inni-
halds gámsins, skemmdir á skipi og öðr-
um farmi, slysum, þrifum á skipi og björg-
unaraðgerðum. Ætli skipin sem sigla hing-
að séu á svipuðum nótum? ■
Gaul fundinn
Tuttugu og fimm árum eftir hið
dularfulla hvarf breska togarans
Gaul hefur flak skipsins loks fund-
ist. Eftir að togarinn fórst komu upp
þær sögur að skipið hefði verið
njósnaskip breska flotans og hefði
farið til veiða norður í Barentshafi til
að njósna um gömlu Sovétríkin.
Þrjátíu og fimm manna áhöfn var á
Gaul þegar hann hvarf. Flak togar-
ans fannst með aðstoð myndavéla
þar sem tókst að sjá bæði nafn og
einkennisbókstafi á flakinu því til
staðfestingar. Liggur skipið á 270
metra dýpi um 68 sjómílur norður
af Hammerfest í Noregi. Skyldu nú
raddir um njósnaleiðangur hverfa í
Ijósi þessa? ■
A
Smáfréttir
Stærsti skipakóngur Grikk-
lands, George P. Livanos,
lést í byrjun júní s.l. sjötugur
að aldri.
- Berge Sigval Bergesen
útgerðarmaður í Noregi lést
einnig í byrjun júní þá 78 ára
að aldri. Hann átti sjötta
stærsta útgerðarfyrirtæki í
Noregi þegar það varð gjald-
þrota.
- Á sjö og hálfu ári hafa 99
stórflutningaskip (bulk) farist
og með þeim yfir 600 menn.
- Wartsila Diesel áformar
að opna verksmiðju nálægt
Jakarta í Indónesíu. - ítalir
ætla að stofna siglingafána til
að auðvelda ítölskum útgerð-
um að keppa á alþjóðamark-
aði.
í Úkraníu er hægt að
kaupa hálfbyggð skip á
spottprís. Um er að ræða tvö
68.000 tonna tankskip, fjögur
frystiskip, þrjár skipakvíar, 28
togara, 11 hraðbáta og flug-
móðurskip. Sum skipanna er
búið að Ijúka við allt að 80%
svo aðeins vantar herslu-
muninn að þau geti farið að
sigla. ■
22
Sjómannablaðið Víkingur