Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Blaðsíða 74
Sjóklæðagerðin styrkir ^
björgunarbátasjóð SVFÍ
Þann 23. júlí s.l. var undirrit-
aður sérstakur samstarfs-
samningur milli Slysavarnafé-
lags islands og Sjóklæðagerð-
arinnar hf. í honum felst í
stuttu máli að ákveðið hlutfall
af sölu ákveðinni vöruflokka af
sjó- og björgunarfatnaði, sem
Sjóklæðagerðin framleiðir und-
ir hinu þekkta merki 66°N,
mun renna í björgunarbátasjóð
Slysvarnafélags íslands.
Sjóklæðagerðin hf. var
stofnuð árið 1929, eða ári eftir
stofnun Slysvarnafélagsins, og
er fyrirtækið í fararbroddi í
framleiðslu á sjó- og björgun-
arfatnaði hér á landi. Fyrirtæk-
ið hefur einnig á síðari árum
haslað sér völl á erlendum
markaði.
Árangur Sjóklæðagerðarinn-
ar í gegnum tíðina má að um-
talsverðu leyti rekja til þess að
fyrirtækið hefur alla tíð haft
nána samvinnu við íslenska
sjómenn. Þeir þekkja hvað
dugar best á sjónum og
reynsla sem þeir hafa miðlað
hefur stuðlað að stöðugri og
traustri þróun við að auka
gæði fatnaðarins. Sama er
uppi á teningnum hvað varðar
björgunarsveitir í landinu og
náið samband hefur lengi verið
á milli Slysvarnafélagsins og
Sjóklæðagerðarinnar í tengsl-
um við björgunarfatnað.
Forráðamönnum 66°N Sjó-
klæðagerðarinnar finnst þeir
að nokkru leyti eiga íslenskum
sjómönnum og björgunar-
sveitamönnum skuld að gjal-
da. Það fer vel á því að þessi
samstarfssamningur hefur ver-
ið gerður milli Slysavarnafé-
lagsins og fyrirtækisins. Björg-
unarbátasjóði Slysavarnafé-
lagsins er ætlað það hlutverk
að reka hin mörgu björgunar-
skip félagsins í kringum landið.
Skipin auka mjög öryggi þeirra
sem sjóinn sækja og annarra
sem í háska lenda hér við land.
Rekstur skipanna kostar hins
vegar umtalsverðt fé og það
verður því kærkomið sem Sjó-
klæðagerðin mun á næstu
árum leggja af mörkum í þenn-
an sjóð. ■
Vélsmiðja Árna Jóns flytur
á fimmtán ára afmælinu
Vélsmiðja Árna Jóns á Rifi var stofnuð árið
1982 og hefur því starfað i 15 ár við að þjónusta
útgerðir, fiskvinnlsu, fiskverkanir og fleiri í Snæ-
fellsbæ. Aðalverkefni vélsmiðjunnar hafa verið
útgerðir en einnig hefur verið töluvert um nýsmíði
í gegnum árin.
Starfsemin hófst að Háarifi 3, en það er gamalt
íbúðarhús. Var þar þröng aðstaða og árið 1989
var byrjað að byggja nýtt hús. Fyrsti hlutinn sem
var 130 fermetrar var
tekinn í notkun árið 1990
og árið 1996 var lokið við
að byggja allt húsið, sem
er 530 fermetrar að gólf-
fleti.
Nú er hægt að vera
með allt að fjóra smá-
báta inn til viðgerða og
hefur það oft komið sér
vel. Eigandi vélsmiðjunn-
ar erÁrni Jón Þorgeirs-
son, en hann byrjað einn
en nú eru fimm til sjö
starfsmenn að staðaldri
starfandi í smiðjunni. ■
74
SJÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR