Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2003, Blaðsíða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2003, Blaðsíða 15
Guðrún Árný Guðmundsdóttir Upplýsingar um nikótín Þeim sem vilja hætta að reykja gengur misvel í baráttunni, en ýmis hjálparmeð- ul eru til sem eiga að létta róðurinn. Eft- irfarandi upplýsingar koma fram á vefn- um doktor.is og kunna þær að koma þeim vel sem eru að hætta að reykja. Spurning: Spurning mín er urn nikótínlyfjanotk- un og áhrif nikótíns á heilann og mið- laugakerfið. í öllum hinum fjölmörgu lesningum sem víða má finna og varða nikótín er einblínt á reykingar og skaða af þeim. Minn vandi er hins vegar sá að ég hef notað nikótínlyf (tyggigúmmí 4 mg) 1 allmörg ár. Ég nota þetta mjög rnikið - jafnvel 2-3 stk. í einu. Maður virðist talsvert háður þessu. Ég veit það ekki með vissu en hef grun um að þetta valdi vanlíðan sem ég finn fyrir. T.d. auki á kvíða og spennu, trufli einbeitingu og minni og hafi víðtæk áhrif á andlegt ástand. Ég tel mig fá skjálfta líka af þessu stundum. Líkamleg einkenni eru lítil. Þó segja sumir að efnið nikótín eitt og sér örvi heilann og sé alls ekki svo slæmt. Ég sakna þess að finna hvergi lesningu sem fjallar beinlínis um áhrif þau sem nikótín (alveg burt séð frá reykingum) getur haft á mann, og mér gengur ntjög illa að tempra nikótínlyfjanotk- unina. Stundum flýgur rnanni í hug að rnaður sé e.t.v. að gera úlfalda úr mýflugu varðandi fram- angreindar spekúlasjónir vegna þess að aldrei er fjallað um áhrif efnisins nikótíns að ráði heldur aðra þætti sem snerta notkun efnisins í formi tóbaks. Mér þætti vænt um upplýsingar og ráð varðandi ofangreint. Svar við spurningunni Nikótín er mjög ávanabindandi efni, en þar sem mun fleiri hættuleg efni eru í sígarettureyk er það talið mun skárra að nota nikótínlyf í stað þess að nota tóbak. En það er ekki gert ráð fyrir að fólk noti nikótínlyf lengur en nokkra mánuði. Þó er talsvert algengt að fólk verði það háð nikótínlyfjum að það noti það í lengri tírna. Einnig er talsvert algengt að fólk noti nikótíntyggjó á rangan hátt, þ.e. tyggi það eins og tyggjó, en þá fer nikó- tínið með munnvatninu niður í maga þar sem það nýtist ekki heldur veldur bara magaóþægindum. Skoða þarf vel leið- beiningarnar hvernig nota á nikótínlyfin. Varðandi aukaverkanirnar þá getur það vel verið að nikótínið valdi vanlíðan sem þú finnur fyrir, s.s. kvíða, spennu og skjálfta. Aukaverkanir nikótíns er m.a. svimi, höfðuverkur, verkir í liðum og vöðvum, meltingartruflanir, svefntruflan- ir, óþægilegir draumar, depurð, óþægi- legur hjárstláttur og hjartsláttartruflanir. Þar sem þú notar talsvert mikið magn af nikótíntyggjói, myndi ég ráðleggja þér að brjóta upp mynstrið og nota nikótín- plástur sem grunnmeðferð. Siðan þarftu að takmarka þig með tyggjóið. Ef þú treystir þér til væri gott að fara að nota 2 mg tyggjó (og þá bara eitt í einu), en ef þér finnst það of stórt stökk, getur þú farið niður í bara eitt 4 mg tyggjó. Not- aðu þetta svona í ca 3 vikur og reyndu að venja þig á að nota eitthvað annað í staðinn fyrir tyggjó, l.d. fá þér ávöxt, ópal eða bara venjulegt tyggjó. Síðan get- ur þú farið að minnka um eitt tyggjó hverja viku. Þegar þú ert farinn að nota bara einstaka tyggjó, skaltu fá þér hálft tyggjó í senn. Þú getur notað venjulegt tyggjó með ef þér finnst það of lítið. Þeg- ar þú ert hættur að nota tyggjó, getur þú farið að huga að því að hætta að nota plásturinn, eftir ca. 2-3 vikur. Minnkaðu þó fyrst niður i veikari gerð. Gott ráð er að búa þér til plan með dagsetningum sem þú getur farið eftir svo þú náir að trappa þig niður á skipulegan hátt. Eins getur þú haft gagn af Zybanmeð- ferð við níkótínfíkninni. Zyban er nikótínlaust sent hefur hjálpað mörgunr. Lyfið dregur úr fráhvarfseinkennum og löngun í nikótín. En lyfið er lyfseðils- skylt og þarft þú þá að hafa samband við þinn lækni. Ég bendi þér eindregið á að hafa sam- band við okkur hjá reyksímanum „Ráð- gjöf í reykbindindi - 8006030“ og fá hjá okkur frekari leiðbeiningar og stuðning, þar sem niðurtröppun nikótínlyfja er einstaklingsbundin. Gangi þér vel! Höfundur er hjúkrunaifrœðingur og ráð- gjafi í „Ráðgjöf í reykbindindi - 8006030“ Sjómannablaðið Víkingur - 15

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.